Skoðun

Ert þú amma eða afi?

Júlíana Elín Kjartansdóttir skrifar
Manstu eftir tilfinningunni þegar barnabörnin komu í heiminn? Var hún ekki „ég hlakka svo til að kynnast þessum nýja einstaklingi, elska hann, aðstoða við að koma honum til manns og vera honum það sem afar mínir og ömmur voru mér“?

En því miður er ekki alltaf sjálfgefið að börn fái að njóta afa og ömmu. Allt of oft þegar foreldrar barns eiga ekki samleið og eru ekki í hjúskap eða sambúð verður föðurfjölskyldan í aukahlutverki. Stundum eru umgengnistálmanir í gangi og barnið hittir ekki föður sinn og fjölskyldu hans svo mánuðum og jafnvel árum skiptir. Erfitt er að ímynda sér hvernig það er að vera foreldri og fá ekki að umgangast barnið sitt, það hlýtur að vera hræðilegt, en einnig er vont að vera amma eða afi og vera neitað um að kynnast barnabarninu sínu. Það veldur líka mikilli sorg!

Skýrt er í barnalögum að öll börn eigi rétt á að þekkja og umgangast báða foreldra sína. Þegar forsjá er ekki sameiginleg er það að mestu leyti undir forsjárforeldrinu (oftast móður) komið. Ef hún af einhverjum ástæðum kærir sig ekki um að faðirinn sinni barninu sínu þá getur hún komið í veg fyrir það allt of lengi. Við viljum að allir feður séu hvattir til að sinna börnunum sínum. Langoftast er það til hagsbóta fyrir börnin.

Leggið okkur lið

Það eru mjög margir í sárum vegna umgengnistálmana. Allir tapa og börnin mest. Þetta þarf ekki að vera svona en það breytist ekkert nema við látum í okkur heyra. Segjum sögu sem flestra svo fólk átti sig á hvers konar óréttlæti og andlegt ofbeldi er í gangi allt of víða. Þetta málefni er ekki einkamál foreldranna. Ástæðulausar tálmanir eiga ekki að líðast!

Okkur langar til að biðja ykkur, afar og ömmur, að leggja okkur lið. Félag um Foreldrajafnrétti er mannréttindafélag sem stendur fyrir rétti barna til beggja foreldra sinna og jöfnum rétti foreldra til að sinna foreldrahlutverki sínu óháð fjölskyldugerð. Í því eru forsjárlausir foreldrar, umgengnisforeldrar, fjölskyldur þeirra og aðrir sem láta sig málið varða. Hafið samband og segið frá ykkar reynslu. Vefsíðan okkar er www.foreldrajafnretti.is.

Við viljum vinna að breyttum hugsunarhætti varðandi sameiginlega ábyrgð allra foreldra á umönnun barna og að kerfið verði skilvirkara til þess að koma í veg fyrir óþarfa deilur og ósamkomulag. Það þurfa allir að hjálpast að við að vekja athygli á leiðum til úrbóta.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×