Menning

Erna Ómars til Íslenska dansflokksins

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Erna Ómarsdóttir er einn virtasti dansari og danshöfundur Íslands.
Erna Ómarsdóttir er einn virtasti dansari og danshöfundur Íslands. Vísir/gva
Erna Ómarsdóttir hefur verið ráðin listrænn ráðgjafi Íslenska dansflokksins og tekur þar við taumunum af Láru Stefánsdóttur.

Erna er einn virtasti dansari og danshöfundur Íslendinga, verk hennar hafa notið mikilla vinsælda og hún hefur hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga. Erna mun leiða dansflokkinn á komandi leikári og verður lögð áhersla á frumsamin verk eftir íslenska og upprennandi danshöfunda.

Fyrsta verkefni Ernu verður að leiða flokkinn í gegnum haustfrumsýningu flokksins í lok október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×