Lífið

Erlendir aðdáendur spreyta sig á Ásgeiri

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Ásgeir Trausti er þessa dagana að semja nýtt efni.
Ásgeir Trausti er þessa dagana að semja nýtt efni.
„Okkur fannst skemmtilegra að gera þetta á íslensku, það er líka enn skemmtilegt fyrir erlendu aðdáendurna að fá að spreyta sig á íslenskunni,“ segir María Rut Hallgrímsdóttir, umboðsmaður Ásgeir Trausta, en um þessar mundir eru textamyndbönd við öll lögin á plötunni Dýrð í dauðaþögn að fara á netið. Eitt til tvö textamyndbönd fara inn á viku. „Þetta eru svona bakgrunnsmyndbönd sem Ásgeir notaði á tónleikaferðalaginu sínu.

Það má alveg segja að við séum að endurnýta myndböndin,“ bætir María Rut við og hlær.

Tvö myndbönd eru þegar komin á netið og er fólk byrjað að kommentera og greinilega byrjað að spreyta sig á íslenskunni. Framleiðslufyrirtækið Sitrus býr til myndböndin og sér Máni Sigfússon um að leikstýra.

Ásgeir lauk nýverið við tónleikaferð um Ástralíu. Hér er hann að gefa kengúru að borða í sama landi.
Það er nóg að gera hjá Ásgeiri um þessar mundir, hann vinnur nú hörðum höndum að því að semja nýtt efni og þá ætlar hann að spila á Esjunni ásamt hljómsveit sinni á morgun. Tónleikarnir verða haldnir hjá Steini, frítt er inn og allir velkomnir. Herlegheitin byrja undir berum himni klukkan 18, en þá þeytir Dj Yamaho skífum en klukkan 20, stígur Ásgeir á svið og gefur forsmekkinn af tónleikum sínum sem verða í Hörpu þann 16. júní.

Þyrluþjónustan Helo verður með þyrlur á staðnum og geta tónleikagestir flogið upp að tónleikasvæðinu frá Esjurótum, gegn gjaldi. Þetta er í annað skipti sem Nova og Helo halda tónleika á Esjunni. 

Ásgeir Trausti og hljómsveit hafa undanfarin rúm tvö ár verið á flakki um heiminn til að fylgja eftir útgáfu plötunnar Dýrð í dauðaþögn. Þau eru nýkomin heim af tónleikaferðalagi um Ástralíu með bresku hljómsveitinni Alt-J. 


Tengdar fréttir

Ásgeir Trausti í Ástralíu

Tónlistarmaðurinn vinsæli Ásgeir Trausti er staddur í Ástralíu ásamt hljómsveit sinni en félagarnir eru á tónleikaferðalagi og munu á næstu dögum spila fyrir um 40.000 manns í fimm borgum þar í landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×