Viðskipti erlent

Erlendar viðskiptafréttir á Vísi 2014

Samúel Karl Ólason skrifar
Viðskiptafréttir Vísis komu víða við 2014.
Viðskiptafréttir Vísis komu víða við 2014. Vísir
Farið var víða í fréttum úr erlendu viðskiptalífi á árinu. Fréttir sem snúa að tækni og internetinu virðast hafa farið sérstaklega vel í lesendur Vísis.

Hér að neðan má sjá tíu erlendar viðskiptafréttir Vísis á árinu sem vöktu mikla athygli

Herbalife sætir rannsókn FBI

Bandaríska alríkislögreglan rannsakaði heilsurisann Herbalife vegna dreifingakerfis fyrirtækisins. Vogunarsjóðurinn William Ackman hefur kallað kerfið hreint og beint píramídasvindl.

Youtube-stjarna með rúman milljarð á ári

Svíinn Felix Kjellberg, sem einnig gengur undir nafninu PewDiePie, er stærsta Youtube stjarna heimsins og tekjur hans eru eftir því. Hann tekur upp myndbönd af sjálfum sér að spila ýmsa vinsæla en stundum óþekkta tölvuleiki.

Einn stærsti galli sem fundist hefur á internetinu

Hearbleed gallinn skók internetið í vor, en hann varð til þess að uppfæra þurfti netþjóna í hraði um heim allan. Gallinn hafði verið til staðar í rúm tvö ár án þess að einhver yrði hans var.

Borgari í svörtu brauði með svörtum osti

Burger King í Japan bauð viðskiptavinum sínum upp á sérhannaðan svartan ost ofan á borgara, svona til þess að vera í stíl við svarta brauðið og svörtu tómatsósuna í hinni svokölluðu Premium Kuro línu.

iPhone 4 orðinn úreltur

Tæknirisinn Apple kynnti nýtt stýrikerfi fyrir snjallsíma til leiks í sumar, en ekki er hægt að nota það í iPhone 4 símum.

Malaysia airlines átti í erfiðleikum í ár.Vísir/AFP
Ódýrara að ferðast með einkaþotu en með lággjaldaflugfélögum

Fyrirtækið PrivateFly byrjaði að bjóða upp á ódýrari fargjöld en flugfélagið EasyJet, sem er þekkt fyrir sitt lága verðlag, á ákveðnum flugleiðum. Þegar fyrirtækið fær spurnir af því að einkaþotur þurfi að ferðast tómar á milli borga (sem á ensku er kallað „empty leg“), býður það viðskiptavinum sínum að kaupa ódýrt far með vélinni.

Enginn vill fljúga með malaysian Airlines

Á aðeins 5 mánaða tímabili fórust tvær af þotum Malaysian Airlines og var fólk hrætt við að ferðast með vélum flugfélagsins. Ekki var það til að bæta viðvarandi hallarekstur flugfélagsins en taprekstur hefur verið á því síðustu 3 ár.

Barbie-dúkka með „eðlilegar línur“ og appelsínuhúð

Lammily-dúkkurnar eiga að sýna hvernig Barbie myndi líta út ef hún væri með „eðlilegar línur“. Líkamsbygging dúkunnar er byggð á tölfræði frá landlæknisembætti Bandaríkjanna.

Færeyingar fríska upp á olíuborpall

Einn stærsti olíuborpallur heims, risapallurinn West Hercules, var í viðamikilli klössun í Færeyjum í haust. Allt hótelrými var upptekið í Rúnavík og nágrannabæjum og þurfti að fá sérstakt hótelskip frá Noregi, Nordstjernen, til Skálafjarðar til að hýsa mannskapinn sem kom að verkefninu.

iPhone 6 plus sagður beygjast auðveldlega

Skömmu eftir að Apple setti iPhone 6 plus á markað hófu notendur að kvarta yfir því að síminn bognaði og þá jafnvel í buxnavösum. Þar að auki birtist á Youtube myndband þar sem sýnt var hve mikið afl þurfi til að beygja símann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×