Viðskipti innlent

Erlendar vefsíður selja 66°Norður mjög ódýrt

Snærós Sindradóttir skrifar
Samanburður á verði á Íslandi og á netinu.
Samanburður á verði á Íslandi og á netinu.
Dæmi eru um að úlpur og annar útivistarfatnaður frá íslenska fatamerkinu 66°Norður fáist mörgum tugum prósenta ódýrari á erlendum netverslunum en í verslunum keðjunnar hér á landi. Íslenskir neytendur geta í einhverjum tilvikum leyft sér að máta fatnaðinn í verslunum hér á landi en farið á netið þegar heim er komið og sparað sér háar fjárhæðir.

Í Fréttablaðinu í gær var fjallað um að íslensk fataverslun væri eina smásöluverslunin sem ekki hefur náð vopnum sínum eftir hrun. Velta fataverslunar dróst saman um tólf prósent í janúar miðað við árið á undan. Þá var rætt við nemendur í Háskólanum í Reykjavík sem allir höfðu sömu sögu að segja. Of dýrt væri að versla hér á landi og þá borgaði sig að kaupa af erlendum vefverslunum eða kaupa mikið magn að utan.

Sjá einnig: Forstjóri 66° Norður segir eðlilegt að fólk reki upp stór augu

Þýska vefverslunin Bike24 selur vandaðan útivistarfatnað, þar á meðal þó nokkrar flíkur frá 66°Norður. Þrátt fyrir að verslunin taki 15 evrur í sendingargjald, Íslandspóstur rukki 595 krónur við komuna til landsins og lagður sé 24 prósent virðisaukaskattur á vöruna við komuna til landsins, er mun hagstæðara að kaupa fatnaðinn af vefsíðunni.

Ólafur Arnarson
Fréttablaðið gerði aðrar stikkprufur á íslenskum merkjum sem notið hafa velgengni erlendis en það sama var ekki uppi á teningnum með verðmun miðað við íslenskan markað. Dæmi um vörumerki sem voru skoðuð voru íslensku barnafatamerkin Igló+Indí og As We Grow.

Ólafur Arnarson, formaður Neytendasamtakanna, segir að verðmunurinn komi sér í opna skjöldu. „Þetta er ekki eðlilegur verðmunur. Maður gerir ráð fyrir að vörur séu eitthvað ódýrari þegar þær eru seldar á netinu. Það þarf ekki að vera með útstillingu með sama hætti og netverslun fylgir ekki sami húsnæðis- og launakostnaður. En það á ekki að muna þetta miklu. Þetta er það sem maður kallar óútskýrðan verðmun.“

Í Fréttablaðinu í gær sagði Andrés Magnússon, formaður Verslunar og þjónustu, að allar aðstæður séu uppi fyrir hagstæða verslun hér á landi. Hann gæti þó ekki svarað því hvort íslensk verslun sé einfaldlega með of háa álagningu.

„Þetta er rosalegt. Það er ekki verið að leyfa íslenskum neytendum að njóta styrkingar krónunnar. Ef neytendur telja að tilteknar vörur séu óeðlilega dýrar vegna þess að styrking krónunnar hefur ekki verið látin ná í gegn þá vita menn að þeir njóta fullrar styrkingar ef þeir versla við erlendar netverslanir,“ segir Ólafur. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir

Íslendingar beina viðskiptum sínum til netsins og frá landinu

Netverslun hefur tekið mikinn kipp á sama tíma og fataverslun á Íslandi dregst saman á miklu hagvaxtarskeiði. Tvöfaldur virðisaukaskattur á fatnaði sem keyptur er af netinu virðist engin áhrif hafa á íslenska neytendur sem telja kaupin samt






Fleiri fréttir

Sjá meira


×