Innlent

Erla eini umsækjandinn um stöðu sóknarprests í Keflavík

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Keflavíkurkirkja.
Keflavíkurkirkja. Mynd/Kirkjan.is
Átta umsækjendur eru um embætti sóknarprests og prests í Keflavíkurprestakalli, Kjalarnessprófastsdæmi. Þar af er einn umsækjandi er um embætti sóknarprests og átta umsækjendur um embætti prests. Þetta kemur fram á heimasíðu Þjóðkirkjunnar.

Umsækjandi um embætti sóknarprests er:

Sr. Erla Guðmundsdóttir er eini umsækjandinn um embætti sóknarprests. Hún sækir einnig um embætti prests ásamt sjö öðrum.

Umsækjendur um embætti prests eru:

Cand. theol. Arnaldur Máni Finnsson

Mag. theol. Dís Gylfadóttir

Séra Erla Guðmundsdóttir

Mag. theol. Fritz Már Berndsen Jörgensson

Mag. theol. Hildur Björk Hörpudóttir

Mag. theol. María Rut Baldursdóttir

Cand. theol. María Gunnarsdóttir

Mag. theol. Viðar Stefánsson

Frestur til að sækja um embættin rann út 27. mars síðastliðinn. Almenn prestskosning fer fram um embætti sóknarprests í prestakallinu eins og fjallað var um á Vísi á dögunum.

Biskup Íslands skipar í embætti prests að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipa níu manns úr prestakallinu auk prófasts.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×