Erlent

Erkibiskup fundinn sekur um hylmingu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Philip Wilson er erkibiskup í suðurhluta Ástralíu.
Philip Wilson er erkibiskup í suðurhluta Ástralíu. bbc
Dómstóll í Ástralíu telur sannað að kaþólskur erkibiskup hafi reynt að hylma yfir barnaníð innan kirkjunnar á áttunda áratug síðustu aldar.

Aldrei áður hefur jafn háttsettur embættismaður innan kaþólsku kirkjunnar í heiminum verið fundinn sekur um brot af þessu tagi. Biskupinn, Philip Wilson, er sagður hafa aðstoðað presta í Ástralíu við að hylma yfir brot sín gegn altarisdrengjum en hann hefur ætíð neitað sök.

Sjá einnig: „Þjóðarharmleikur“ Ástrala afhjúpaður

Hann segist þannig ekkert til í því að þolendur prestanna hafi tjáð honum af brotunum á sínum tíma. Einn þolendanna sem bar vitni við réttarhöldin sagði að Wilson hafi skammað sig fyrir að bera sakirnar á prestana. Drengurinn, sem þá var 11 ára, sagði að Wilson hafi sakað sig um lygar og ætti því að fara með tíu Maríubænir til að gera upp syndir sínar.

Í tilkynningu frá kaþólsku kirkjunni er haft eftir Wilson að hann sé mjög vonsvikinn með niðurstöðuna og ekki sé búið að taka ákvörðun með framhaldið. Dómur verður kveðinn upp yfir honum í júní og gæti hann átt yfir höfði sér tveggja ára fangelsi. Verjendur Wilson reyndu fjórum sinnum að fá málinu vísað frá vegna heilsu biskupsins. Hann er 67 ára gamall og hefur verið greindur með Alzheimer.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×