Skoðun

Erindi jafnaðarmanna

Oddný G. Harðardóttir skrifar
Mikil ólga er í stjórnmálunum um þessar mundir. Fólk kallar eftir einhverju nýju og öðru en það hefur haft. Í Bretlandi hefur Verkamannaflokkurinn valið til forystu nýjan leiðtoga, eldri mann sem virðist hafa kveikt einhvern neista hjá ungu fólki. Hann hefur stundum þótt róttækur og umdeildur en hann er jafnaðarmaður. Fróðlegt verður að sjá hvaða línur hann mun leggja.

Eigum við jafnaðarmenn eitthvert erindi á 21. öldinni? Grunngildi jafnaðarstefnunnar hafa frá fyrstu tíð verið jafnræði, réttlæti, samhjálp og friður. Að allir einstaklingar skipti máli og leggi sitt af mörkum til samfélagsins. Þetta kemur fram í baráttu jafnaðarmanna fyrir velferð einstaklinga, eflingu atvinnulífs, sanngjörnum viðskiptum og félagslegu réttlæti . En ekki síður í vilja til að skila lífvænlegri veröld til komandi kynslóða með baráttu fyrir umhverfisvernd í anda sjálfbærrar þróunar. Þeir berjast gegn hvers kyns spillingu og hindrunum sem standa í vegi góðra stjórnunarhátta og gegn þeim stjórnmálaöflum sem styðja hag forréttindahópa. Jafnaðarmenn standa vörð um frjálsa fjölmiðlun, óháð og óvilhallt réttarkerfi og virðingu fyrir réttindum minnihlutahópa og einstaklinga.

Svarið við spurningunni er augljóslega já, því grunngildi jafnaðarstefnunnar eru sígild og eiga jafn vel við nú og áður.

Þegar fólk velur að styðja við stefnu jafnaðarmanna, getur það verið visst um út frá hvaða megin sjónarmiðum verður unnið. Meiri hluti kjósenda treysti því að áherslur Samfylkingarinnar og Vinstri grænna myndu reynast almenningi best í glímunni við fordæmalausar aðstæður eftir hrun. Nú, sjö árum eftir hrun, hafa fræðimenn skoðað hvernig þjóðir tókust á við kreppuna.

Ísland og Írland

Hægri stjórnin á Írlandi fór allt aðra leið en vinstristjórnin á Íslandi. Írar lækkuðu bætur, hækkuðu almenna skatta, styttu atvinnuleysistímabilið og lækkuðu vaxtabætur. Við hækkuðum bætur, lækkuðum skatta á lágtekjuhópa, lengdum atvinnuleysistímabilið, hækkuðum almennar vaxtabætur og bættum sérstökum vaxtabótum við. Á Íslandi urðu lágtekjuhóparnir fyrir minnstri kjaraskerðingu og jöfnuður fór vaxandi en á Írlandi urðu lágtekjuhóparnir fyrir mestri kjaraskerðingu og ójöfnuður fór vaxandi.

Það skiptir mál hverjir stjórna.




Skoðun

Sjá meira


×