Viðskipti erlent

Erfitt að beygja nýjan Samsung síma

Samúel Karl Ólason skrifar
Lítið sem ekkert gekk að beygja nýjan síma Samsung.
Lítið sem ekkert gekk að beygja nýjan síma Samsung.
Samsung kynnti í gær nýja síma fyrirtækisins. Galaxy S6 og Galaxy S6 Edge. Í símunum eru mjög öflugar myndavélar og einnig er boðið upp á þráðlausa hleðslu. Þá eru símarnir sagðir hraðvirkari en aðrir símar Samsung.

Fyrirtækið segir að með þessum símum megi taka betri myndir í slæmri birtu, en þekkist hjá öðrum símum. Með því að ýta tvisvar sinnum á „Home“ takkann má opna myndavélina á skotstundu.

Á kynningu Samsung kom fram að gler símans væri helmingi sterkara en gler sambærilegra síma. Þá var skotið á Apple með því að segja að síminn bognaði ekki. Eins og frægt varð, þóttu símar Apple iPhone 6 og 6 Plus kannski sérstaklega, bogna auðveldlega.

Strax hefur einhver tekið þá orðinu og þegar er búið að birta myndband á Youtube þar sem reynt er að beygja símann með álíka átaki og þurfti á iPhone 6 Plus. Bæði myndböndin má sjá hér að neðan.

Samsung S6 bend test Apple 6 Plus bend test

Tengdar fréttir

Segja Samsung Note 4 ekki bogna

Samsung hefur birt myndband af þeim þungaprófum sem, nýjasti sími fyrirtækisins, Note 4 fór í gegnum.

iPhone 6 plus sagður beygjast auðveldlega

Fjölmargir hafa birt myndir á Twitter af beygðum símum og jafnframt hefur verið gert myndband þar sem sýnt er fram á hve mikið afl þurfi til að beygja símann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×