Tónlist

Erfiðleikar í herbúðum Reykjavíkurdætra

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Rapparinn Vigdís Ósk Howser tilkynnti í dag á Facebook að hún hygðist hætta í Reykjavíkurdætrum eftir sumarið, eða þegar væntanlegri tónleikaferð sveitarinnar til Evrópu lýkur. Rappararnir eru við það að leggja lokahönd á nýja plötu og búið er að bóka sveitina á fjórar tónleikahátíðir í sumar.

Vigdís útskýrir brotthvarf sitt með þeim hætti að hún vilji einbeita sér að andlegum bata vegna nauðgunar sem hún varð fyrir um sjö árum síðan. Hún segir að upphaflega hafi það verið gott fyrir bata sinn að ganga til liðs við sveitina en segir fjölmiðlaathyglina sem fylgt hefur í kjölfarið hafa orðið til þess að auka á kvíða sinn og hræðslu.

„Þegar maður hef­ur rekið sig oft­ar í en manni lang­ar og maður er byrjaður að grafa gröf sem er svo djúp og eng­in gríp­ur í hönd­ina manns en þú finn­ur fyr­ir fingr­un­um á fólki sem er að teygja sig niður að reyna að ná þér aft­ur upp. Þegar þú finn­ur fyr­ir fingr­un­um þá veistu að það er fólk sem stend­ur við bakið þitt. Að semja rapp hef­ur gefið mér mikið og hef­ur það hjálpað mér mikið. Hins­veg­ar að vera svona mikið í sviðsljós­inu og skandal­ast fyr­ir þjóðina oft­ar en einu sinni hef­ur ekki hjálpað mér mikið. Ég hef áunnið með mér kvíða og hræðslu, ég er sterk en ég er líka veik,“ segir Vigdís meðal annars í færslunni sem birtist á Facebook.

RVKDTR eru lífrænt batterí

Brotthvarf Vigdísar kemur í kjölfar orðróms um óstöðugleika innan sveitarinnar. Kolfinna Nikulásdóttir, eða Kylfan eins og hún hefur verið kölluð, staðfestir að svo sé í samtali við Vísi.

„Það eru erfiðleikar í hljómsveitinni, alveg eins og gerist í samstarfi á meðal manneskja,“ segir Kolfinna. „Við erum margt fólk sem kemur úr ólíkum áttum og að sjálfsögðu geta komið upp erfiðleikar. Það er enginn að fara ljúga því að það gangi allt eins og í sögu.“

Kolfinna segir RVKDTR ekki virka eins og aðrar sveitir. Það komi til vegna gífurlegs fjölda liðsmanna og óhefðbundna starfshátta.

„Þetta er batterí sem er mjög lífrænt. Íslendingar eiga mjög erfitt með að skilja að Reykjavíkurdætur eru mjög mikið Wild Card. Það hefur verið reynt frá upphafi að festa niður hvað við séum. Það voru fjölmiðlar sem skýrðu okkur hljómsveit í upphafi, ekki við. Við skýrðum bara lag Reykjavíkurdætur sem okkur langaði til þess að gera saman. Mér finnst það merkilegt að eitthvað svona batterí, eða orka, sé óskilgreinanleg.“

Fólk lifir á dramatík annarra

Kolfinna vill ekki tjá sig um það hvort fleiri breytinga séu að vænta innan herbúða RVKDTR.

„Fólk lifir á dramatík annarra. Ég held að fólk ætti bara að drífa sig í leikhús, í bíó eða lesa góða bók. RVKDTR eru tæplega 20 manneskjur og þar af leiðandi eru ólíkar skoðanir á hlutunum í gangi. Ólík gildi og þar af leiðandi ólík sköpun. Við skiptumst stundum á að vinna þrjár saman og aðrar tvær annars staðar. Þá gerist eitthvað mjög ólíkt. Ég sem til dæmis ekki sama lag með Blæ eins og ég sem með Steiney sem dæmi. Það er aldrei þannig að ein okkar geti talað fyrir allan hópinn. Það virðist vera tilhneiging hjá fólki að ef ein gerir lag um kynferðisofbeldi þá sé allir hópurinn orðinn að Stígamótum. Ef ein er með hár undir höndunum þá séum við það allar. Ég fer í vax og skammast mín ekkert fyrir það. Það eru ekkert allar loðnar í Reykjavíkurdætrum, bara sumar.“

Einnig staðfestir Kolfinna að RVKDTR séu að ganga til samstarf við nýjan umboðsmann.

Hér fyrir neðan má svo lesa færslu Vigdísar í heild sinni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×