Innlent

Erfiðara að ná réttum niðurstöðum en áður

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við háskólann á Bifröst, segir draga til mikilla tíðinda í skoðanakönnun Fréttablaðsins um fylgi við stjórnmálaflokkana á Íslandi sé hana að marka.

Sjá: „Píratar tapa miklu fylgi en Sjálfstæðisflokkur eykur við sig“

Hann segir þó sífellt erfiðara sé að fá réttar niðurstöður í skoðanakönnunum en áður. Breyting á síma- og nethögum fólks gerir það erfiðara að taka stjórnmálapúlsinn. Það vandamál einskorðast ekki við Ísland.

„Flöktið á milli kannana gefur auðvitað tilefni til þess að maður velti fyrir sér hvort það sé orðið erfiðara að ná fram marktækum niðurstöður í könnunum,“ segir Eiríkur. „Við höfum séð þessa þróun í Bandaríkjunum, Bretlandi og víðar þar sem er orðið mun erfiðara en áður að ná marktækum niðurstöðum en áður. Maður veltir því fyrir sér hvort eitthvað svipað er að gerast hér þar sem er svo mikill munur á milli kannana,“ segir hann.

Töluverður munur er á könnun Fréttablaðsins og MMR sem kom út fyrr í vikunni. Til að mynda er fylgi Sjálfstæðisflokksins 34,6 prósent hjá Fréttablaðinu en 20,6 prósent hjá MMR.

Sjá: „Könnun MMR: Píratar og Sjálfstæðismenn tapa fylgi“

„Þó er margt athyglisvert í þessari könnun, sérstaklega það hversu mikið stökk Sjálfstæðisflokkurinn tekur upp undir þá stöðu sem hann telur nú kannski besta í sinni sögu, að vera við 35 prósenta markið eða rétt undir því. Í nýlegri könnun er hann hinsvegar að mælast rétt yfir 20 prósentum og hann getur ekki verið á báðum stöðum í einu. Það er ekkert sem getur skýrt þetta stökk á milli tveggja daga.“

Miklar sveiflur eru á milli skoðanakannana.
Ýmsir þættir geta útskýrt muninn á könnununum. Báðar eru nýta viðurkennda aðferðafræði en aðferðirnar geta þó kallað fram mismunandi niðurstöður sem ber að hafa í huga þegar í þær er rýnt. Könnun MMR er til dæmis tekin yfir nokkra daga og sýnir ef til vill betur ákveðið viðhorf til lengri tíma. Fréttablaðskönnunin er tekin á einum degi og gæti sýnt hvernig landið liggur þann daginn. Þannig gætu nýlegir atburðir jafnvel haft meiri áhrif á þær niðurstöður. Þar vísar Eiríkur til sjónvarpskappræðna sem haldnar voru í síðustu viku.

„Ég geri ráð fyrir því að Bjarni Benediktsson hafi þótt standa sig vel í sjónvarpskappræðum um daginn og geri ráð fyrir að hann sé að njóta góðs af því núna,“ segir Eiríkur. „Annað sem vekur athygli er skörp dýfa Pírata. Það hefur svosem verið við búið að þeir myndu fara niður eftir því sem nær dregur kosningum. Eðlisfræðin í stjórnmálunum er þannig að maður geti átt von á því. Viðreisn nær ekki að rísa eins og maður hefði haldið að fólk þar á bæ þætti ásættanlegt og heldur ekki í átt að því sem sést hefur í öðrum könnunum,“ segir hann.

„Þá vekur sérstaka athygli bág staða Samfylkingarinnar sem gerir einhvernveginn ekki neitt annað en að tapa fylgi í þessum Fréttablaðskönnunum og er núna innan við prósenti frá því að þurrkast út af þingi. Ef marka mætti þær niðurstöður væri það nú saga til næsta bæjar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×