Justin Bieber á sviðinu í Osló.
NORDICPHOTOS/GETTY
Ungstirnið Justin Bieber á erfiða viku að baki. Hann var meðal annars kærður fyrir líkamsárás af ljósmyndara og gæti átt yfir höfði sér fangelsisvist verði hann fundinn sekur.
Þá slösuðust norskir aðdáendur söngvarans slösuðust lítillega þegar Bieber tróð upp í Ósló og voru 49 fluttir á spítala.
Aðdáendur slösuðust í Noregi
Bieber er á tónleikaferðalagi um þessar mundir og hélt meðal annars tónleika í Ósló. Boðið var upp á ókeypis miða á tónleikana sem fóru fram utandyra við Óperuhúsið í Ósló og safnaðist mikill fjöldi unglingsstúlka þar saman í von um að bera poppstjörnuna augum.
Bieber sagði í viðtali við Aftenposten að hann hefði áhyggjur af öryggi norskra aðdáenda, en sumir höfðu kastað sér í veg fyrir bílinn hans. Stúlkurnar börðust einnig hart til að tryggja sér miða á tónleikana og talið er að um 49 hafi slasast í kjölfarið og fjórtán voru fluttir brott í sjúkrabíl.
Norsku yngismeyjarnar beyttu ýmsum brögðum til að bera Bieber-inn augum á Óperuhúsinu. Þessar fengu bátinn hans pabba lánaðan.
NORDICPHOTOS/GETTY
Missti meðvitund
Daginn eftir glundroðann í Ósló fékk Bieber heilahristing eftir að hann datt baksviðs á tónleikum í París.
Bieber mun hafa dottið á glervegg baksviðs og misst meðvitund í nokkrar sekúndur sökum heilahristings. Söngvarinn var þó fljótur að jafna sig og fór þá aftur fram á sviðið og lauk við tónleikana. Hann tjáði sig um atvikið á Twitter-síðu sinni stuttu síðar:
„Rak höfuðið í og þurfti smá vatn. Allt í góðu samt. Ég er frá Kanada og við erum hörð í horn að taka. Sýningin verður að halda áfram."
Bieber var hundfúll eftir slaginn við ljósmyndarann.
Kærður fyrir líkamsárás
Bieber lenti í stimpingum við ljósmyndara skammt frá heimili sínu í Calabasas á sunnudaginn fyrir viku, Ljósmyndarinn kallaði á lögreglu en þá var söngvarinn horfinn á braut ásamt kærustu sinni, Selenu Gomez.
Ljósmyndarinn kvartaði undan verkjum í brjóstkassa eftir átökin við söngvarann unga en Bieber missti annan skóinn í öllum hamaganginum. Fórnarlambið kærði Bieber fyrir líkamsárás og verði hann fundinn sekur á hann yfir höfði sér sex mánaða fangelsi.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Heklugos var haldið í annað sinn síðastliðinn fimmtudag á Ásbrú í Eldey frumkvöðlasetri þar sem rúmlega 500 manns fjölmenntu á viðburðinn til að kynna sér hönnun á Suðurnesjum. Heiðursgestir voru Óla...
Meira
Jessica Ennis, Ólympíumeistarinn í sjöþraut, brosti sínu blíðasta um helgina þegar hún gekk að eiga unnusta sinn Andy Hill í St. Michael and All Angels-kirkjunni í Derbyshire á Englandi.
Meira
Kristen Wiig hefur sýnt það og sannað í sjónvarpsþáttunum Saturday Night Live að hún er ein fyndnasta kona heims. Hún er einnig afar kynþokkafull eins og sést í nýjasta hefti tímaritsins Harper's Baza...
Meira
Leikarinn Zach Galifianakis hefur slegið rækilega í gegn í Hangover-myndunum. Hann þarf sjálfur ekki að hafa áhyggjur af timburmönnum þar sem hann hætti að drekka fyrir stuttu.
Meira
Enginn þekkir mann betur en eiginkonan og haft er fyrir satt að það megi ráða í innræti manna af framkomu þeirra við fjölskyldu sína. Samkvæmt því þarf þjóðin ekki að kvíða forsætisráðherratíð Sigmund...
Meira
Eyþór Ingi Gunnlaugsson setti inn þessa mynd af sér á Facebook í hádeginu þegar hann var nýbúinn að ganga um í höllina í Malmö með eftirfarandi skilaboðum á ensku:
Meira
Christy Turlington er af mörgum talin hin eina, sanna ofurfyrirsæta. Hún hefur átt góðu gengi að fagna síðan hún byrjaði kornung í bransanum en í dag er hún 44ra ára.
Meira
Leikarinn Chris Pine fer með hlutverk í kvikmyndinni Star Trek Into Darkness. Hann var nýverið gestur í spjallþættinum Ellen DeGeneres og var þá inntur eftir því hvernig konu hann heillaðist helst af.
Meira
Lagið Someone like you með bresku söngkonunni Adele hentar best til að róa taugar flughræddra, ef marka má rannsókn sem kvíðasálfræðingurinn Dr. Becky Spelman framkvæmdi fyrir tónlistarveituna Spotify...
Meira
"Þetta var frábær upplifun og stemmningin í höllinni var vægast sagt rosaleg. Svíar leggja greinilega allt undir því þeir eru líka með hrikalega flott lag í keppninni í ár,“ segir Kristín Inga J...
Meira
"Þetta er hjólasprettreið og keppt er í tveimur flokkum; 15 kílómetra leið sem nefnist Fransbrauð og 30 kílómetra leið sem kallast Rúgbrauð,“ segir Böðvar Guðjónsson, talsmaður Kex hostels, um s...
Meira
Fyrsta kvikmyndin sem leikkonan Emma Watson man eftir að hafa séð er Pretty Woman með Juliu Roberts í aðalhlutverki. Í viðtali við W segist Watson hafa verið sjö ára gömul þegar hún sá myndina.
Meira