Glamour

Er Tinder snilld?

Ritstjórn skrifar
Margt og mikið hefur breyst í stefnumótamenningu landans á undanförnum árum og spilar tilkoma appsins Tinder þar stórt hlutverk. Flestir sem hafa skoðað appið vinsæla vita að það snýst um að komast í kynni við fólk og úr verða oft sambönd, jafnvel hjónabönd. 

Glamour langar að kanna Tinder samfélagið, sem er ansi stórt hér á landi, hver er lykillinn á bakvið vinsældir þess, hverjir eru helst að nota appið og í hvaða tilgangi? Það besta og versta við Tinder? Hvenær dags fara flestir á Tinder, hvað er off á Tinder og fleira í þeim dúr. Allt að sjálfsögðu nafnlaust. 

Við hvetjum sem flesta til að svara þessari könnun hér.










×