Handbolti

Er Þórir búinn að smita stelpurnar?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Norsku stelpurnar hafa unnið alla fimm leiki sína á mótinu.
Norsku stelpurnar hafa unnið alla fimm leiki sína á mótinu. Vísir/Getty
Norska kvennalandsliðið í handbolta hefur unnið fimm fyrstu leiki sína á Evrópumótinu í Ungverjalandi og Króatíu og stelpurnar hans Þóris Hergeirssonar hafa þegar tryggt sér sæti í undanúrslitunum þrátt fyrir að enn sé ein umferð eftir af milliriðlunum.

Þórir Hergeirsson hefur verið að glíma við flensuna og var með hita þegar hann stýrði norska liðinu til endurkomusigurs á móti Póllandi í gærkvöldi.  Með þeim sigri gulltryggði liðið sig inn í undanúrslitin langt á undan öðrum liðum á mótinu.

Silje Solberg, aðalmarkvörður norska liðsins, vaknaði hinsvegar í morgun með sárandi í hálsi og þá hefur flensan einnig verið að ganga innan þjálfarateymis norska liðsins. Aðstoðarþjálfarinn Mia Högdahl veiktist en er öll að braggast, leikgreinandinn Wenche Halvorsen Stensrud hefur líka verið veikur og sálfræðingurinn Britt Tajet-Foxell er farinn heim vegna veikindanna.

Slappleiki Silje Solberg vekur upp smá áhyggjur hjá lækni liðsins Nils Ivar Leraand. „Ég þarf að skoða Silje betur. Óþægindi í hálsi hljómar líkt því og Þórir Hergeirsson var að glíma við," sagði Nils Ivar Leraand í viðtali við Verdens Gang en þar hefur blaðið líka eftir Þórir sjálfum að hann passi sig á því að umgangast leikmenn liðsins sem minnst vegna veikinda sinna.

Norska kvennalandsliðið hefur verið heppið á undanförnum stórmótum og sloppið við veikindi en flensan getur verið fljót að smitast innan liðs og það getur verið dýrkeypt þegar örlög liða á stórmóti geta ráðist í einum leik.

Þórir var ekki tilbúinn að gefa það út í viðtali við VG að Silje Solberg yrði hvíld á móti Ungverjum á morgun en sá leikur skiptir norska liðið engu máli. Noregur mun vinna milliriðilinn sinn saman hvernig fer í þeim leik.

„Það er of snemmt að álykta eitthvað um það. Við tökum samt aldrei áhættu með heilsu leikmanna,"sagði Þórir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×