Lífið

Er þetta nýja kærastan hans Cristiano Ronaldo?

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Ronaldo er sagður vera kominn í nýtt samband.
Ronaldo er sagður vera kominn í nýtt samband.
Knattspyrnukappinn portúgalski, Cristiano Ronaldo, er sagður vera kominn með nýja ástkonu. Hún er ítölsk og heitir Alessia Tedeschi. Hún er þekkt fyrirsæta í heimalandinu og hefur nafn hennar einnig ratað í þarlenda fjölmiðla vegna þess að hún er fyrrum tengdadóttir Silvio Berlusconi, fyrrum forsætisráðherra.

Tedeschi var gestur Ronaldo á leik Real Madrid og Juventus í meistaradeildinni. Fjölmiðlar ytra greindu einnig frá því að parið hafði eytt nóttinni saman. 

Tedeschi hefur tekið þátt í fegurðarsamkeppnum og komst í úrslit Ungfrú Ítalíu árið 2011.

Ronaldo var áður með Irina Shayk, rússnesku fyrirsætunni. Hún mun hafa sparkað knattspyrnugoðinu þegar komst upp að hann hafði ítrekað sent skilaboð til annarra kvenna. Upp komst um athæfi Ronaldo á gamlárskvöld síðastliðið og viðurkenndi hann loks fyrir kærustunni þáverandi að hafa sent konum frá sex löndum skilaboð og daðrað við þær. Þau voru saman í fimm ár.

Ronaldo hefur síðan þá verið orðaður við nokkrar konur. Hann var sagður vera með spænsku sjónvarpskonunni Lucia Villalon og mexíkósku sjónvarpskonunni Vanessa Huppenkothen. Þær neituðu því báðar og seinna kom í ljós að Huppenkothen var í sambandi með liðsfélaga Ronaldo, mexíkóska framherjanum Javier Hernandez.

Irina hefur einnig leitað á önnur mið, eftir sambandið við Ronaldo. Hún er nú með leikaranum góðkunna Bradley Cooper.

Hér má sjá hina ítölsku Tedeschi, sem birti þessa mynd af sér á Instagram, en segist hún vera stödd fyrir utan Santiago Bernabeu, heimavöll Real Madrid, þar sem Ronaldo leikur.

Let's go to the #stadium #bernabeu #Madrid #champions #realmadrid vs #juventus ⚽

A photo posted by Alessia Tedeschi (@alessiatedeschi91) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×