Íslenski boltinn

Er þetta mark sumarsins?

Eirikur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mark Ármanns Péturs Ævarssonar fyrir Þór gegn KR í Pepsi-deildinni í kvöld var stórglæsilegt eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi.

Með markinu kom hann Þór 1-0 yfir í lok fyrri hálfleiks en það kom eftir langt útspark Sandor Matus markvarðar og sendingu Jóhanns Helga Hannessonar.

Leiknum lauk með 2-0 sigri Þórs og var síðara markið einnig afar laglegt. Það skoraði Shawn Nicklaw og má sjá hér fyrir neðan.

Leiknum eru gerð skil í fréttinni hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×