Lífið

Er þetta hundur eða ljón?

Lygilega mikil líkindi eða hvað?
Lygilega mikil líkindi eða hvað? Mynd/Twitter
Fólk grípur til ýmissa ráðstafana til að vernda heimili sitt fyrir óboðnum gestum. Sumir láta sér nægja að fá sér hund á meðan aðrir dulbúa hundinn sinn sem ljón.

Eigandi þessa Dogue de Bordeaux gerði það einmitt en Twitter-síðan Cute Overloads birti myndirnar.

Í frétt Daily Mail segir að þetta sé nú ekki í fyrsta skipti sem hundur sé dulbúinn sem konungur dýranna. Kínverskur dýragarður skipti meðal annars hundi út fyrir ljón á síðasta ári og lét sem ekkert væri. Gestir dýragarðsins létu þó ekki gabba sig og var mikið grín gert að dýragarðinum fyrir uppátæki.

Mynd/Twitter





Fleiri fréttir

Sjá meira


×