Heilsa

Er streita merki um dugnað?

Rikka skrifar
visir/getty
Í nútímasamfélagi er stress og álag orðið að daglegu brauði og jafnvel oft á tíðum merki um það að fólk sé duglegt og orkumikið. Þó svo að stress og streita geti verið jákvæð upp að vissu marki og leiði til þess að koma hlutum í verk og klára, getur hún líka haft neikvæð og langvarandi áhrif á andlega sem og líkamlega heilsu.

Streita getur komið fram við ýmiskonar aðstæður, hvort sem að þær eru utanaðkomandi eða við sköpum þær upp á eigin spýtur. Hún er lúmsk og oft áttum við okkur ekki á því þegar við erum komin yfir eðlileg streitumörk.

Þegar svefntruflanir, einbeitingaskortur og hjartsláttartruflanir eru orðnar hluti að daglegri líðan gefur það til kynna að streitan sé komin yfir þau mörk sem þolanleg eru til lengri tíma. Ef að þú telur þig ekki ná stjórn á streitunni með einföldum hætti þá ættir þú að leita til læknis en það er þess virði að reyna eftirfarandi aðferðir fyrst.



Hlátur


Hlátur hefur ótrúlegan lækningarmátt og lækkar streituhormón í líkamanum. Horfðu á bíómynd sem kemur þér til að hlægja eða umkringdu þig vinum sem hafa góðan húmor.

Te

Te hefur róandi áhrif á sál og líkama, sérstaklega kamillu, mintu og lavender te. Þó að tebollinn dugi bara í nokkrar mínútur þá virðist það gefa okkur ákveðna hvíld og ró, þó að það sé ekki nema í smátíma.

Öndun

Einbeittu þér að öndun þinni um stund. Andaðu djúpt að þér í gegnum nefið, haltu andanum inni í þér í nokkrar sekúndur og andaðu rólega frá þér út um munninn. Öndun er ein öflugasta slökunarleiðin sem að þú getur gert hvar og hvenær sem er.

Göngutúr

Göngutúr í náttúrunni er öflug leið til að losa um stress og streitu. Notaðu öndunaræfingun hér að ofan í göngutúrnum og fylltu líkamann af fersku súrefni. Njóttu augnabliksins og fegurð náttúrunnar í öllu sínu veldi.


Tengdar fréttir

Hvers vegna hugleiðsla?

Við hættum aldrei að hugsa því að heilinn er dugleg og falleg vél sem tekur sér aldrei frí. En að tengja sjálfsmynd okkar og persónuleika við þessa vél leiðir til vansældar. Þannig verður skortdýrið til – þegar við trúum því að við séum hugsanir okkar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×