Lífið

Er spennt að verða fertug

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Valgerður kveðst heppin að vera að fást það sem hana langar og hafa visst rými til að gera það sem henni dettur í hug.
Valgerður kveðst heppin að vera að fást það sem hana langar og hafa visst rými til að gera það sem henni dettur í hug. Vísir/Eyþór

„Tónleikarnir hefjast á píanólagi sem ég samdi þegar ég var fimmtán ára og í lok þeirra mun Karlakórinn Svanir syngja lagið í raddsetningu sem ég gerði fyrir hann. En pabbi minn, hann Jón Trausti Hervarsson, samdi textann,“ segir Akurnesingurinn, söngkonan og kórstjórinn Valgerður Jónsdóttir.

Hún ætlar að halda upp á fertugsafmælið sitt í dag með tónleikum, kaffi og kökum og býður fjölskyldu, samstarfsfólki og öðrum vinum. Flest laganna eru hennar eigin, eða þeirra hjóna, hennar og Þórðar Sævarssonar.

„Við vorum að dusta rykið af hljómsveitinni okkar, My Sveet Baklava. Þar sem ég kláraði klassískt söngnám í FÍH á sínum tíma ætla ég að taka eina aríu og eitthvað fleira úr þeirri deild. Svo raular fjölskyldan nokkur lög. Dóttirin, Sylvía, er að verða tíu ára og farin að radda.“



Valgerður kennir tónmennt í Grundaskóla á Akranesi. Auk þess heldur hún námskeið, stjórnar karlakór og syngur fyrir túrista. „Við Doddi, maðurinn minn, höfum verið að taka á móti hópum á safnasvæðinu á Görðum, þar syngjum við þjóðlög og erum með kynningar og myndir. Þetta er svona lítil fræðslu-og tónlistarstund.“



Hún kveðst ánægð með lífið og spennt að ná þessum aldri. „Ég þekki margt fólk milli fertugs og sextugs og það virðist svo gaman hjá því. Svo er ég líka svo heppin að vera að fást við það sem mig langar, að sinna tónlistinni og hef ákveðið rými til að gera það sem mér dettur í hug. Það er dýrmætt.“



Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 24. september 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×