Lífið

Er sigurlag Eurovision nú þegar komið fram?

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gabbani gæti farið alla leið.
Gabbani gæti farið alla leið.
Francesco Gabbani er á leiðinni í Eurovision í Kænugarði og það fyrir hönd Ítala í maí. Lagið Occidentali's Karma hefur vakið gríðarlega mikla athygli og þykir nokkuð sigurstranglegt.

Til að mynda hafa nokkrar milljónir horft á flutning Gabbani á lokakvöldinu í forkeppni Ítala á YouTube og eru Íslendingar einnig mjög hrifnir af laginu.

Á lokakvöldinu mátti sjá górillu koma inn á sviðið og taka virkan þátt í atriðinu með Gabbani. Þá hefur lagið fengið um fimmtíu milljónir áhorfa á YouTube-síðu hans.

Hér að neðan má sjá myndband af flutningnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×