Skoðun

Er nýtt debetkort lottó­- vinningur fjársvikarans?

Gísli B. Árnason skrifar
Bankinn minn Landsbankinn sendi mér á dögunum nýtt snertilaust debetkort sem á að leysa af hólmi eldri gerð debetkorta. Eftir að hafa kynnt mér virkni þessa nýja korts í samtali við starfsmenn Landsbankans og með því að lesa upplýsingar um það á heimasíðu Landsbankans, er augljóst að verið er að draga verulega úr því öryggi sem eldri debetkortin buðu upp á.

Þegar greitt var með eldri debetkortum Landsbankans þurfti korthafi að slá inn lykilnúmer upp á fjórar tölur til að færslan færi í gegn. Í því fólst visst öryggi sem kom í veg fyrir að aðrir en þeir sem vissu lykilnúmerið, gætu verslað út á kortið. Með þessum nýju kortum getur hver sem er greitt allt að kr. 5.000 í hverri færslu með því einungis að leggja kortið upp að posanum og færslan fer í gegn.

Af upplýsingum á heimasíðu Landsbankans um þessi nýju kort má ráða að ábyrgðin fyrir snertilausum úttektum sem sviknar eru út af þessu nýja debetkorti liggi hjá korthafanum. Þetta kort er því mikill happafengur, eiginlega lottóvinningur fyrir óprúttna aðila sem svífast einskis til að komast yfir peninga annarra. Í samtali við starfsmann Landsbankans spurði ég hann hvort ekki væri hægt að slökkva á þessum snertilausa möguleika því mér hugnaðist ekki að hægt væri að borga með kortinu án þess að slá inn lykilnúmerið. Svaraði hann að það væri ekki hægt.

Eftir að hafa sem rannsóknarlögreglumaður rannsakað fjölmörg sakamál er varða fjársvik út af glötuðum eða stolnum greiðslukortum tel ég nokkuð öruggt að með því að ekki þurfi lengur að slá inn lykilnúmer muni glæpir sem tengjast þessum nýju greiðslukortum aukast til muna. Þá hefur komið í ljós að með hverri færslu út af þessu nýja debetkorti þarf korthafinn að greiða 17 króna þjónustugjald til Landsbankans, sem er töluverð hækkun frá því sem var með eldri debetkortin. Ég hef því ákveðið að taka nýja debetkort Landsbankans ekki í notkun af þeirri einföldu ástæðu að öryggi þess er engan veginn nægjanlegt.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Sjá meira


×