Lífið

Er Marilyn Manson að breytast í Nicolas Cage?

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Nei, þetta er ekki "finndu fimm villur“-þraut. Þetta eru tveir menn á mismunandi stað í lífinu, en í sama stjörnumerki.
Nei, þetta er ekki "finndu fimm villur“-þraut. Þetta eru tveir menn á mismunandi stað í lífinu, en í sama stjörnumerki. Vísir/Getty
Vestanhafs velta menn því nú fyrir sér hvort rokkarinn sérstaki Marilyn Manson sé hægt og rólega að breytast í leikarann Nicolas Cage. Hér að ofan má sjá þá félaga; Cage til vinstri og Manson til hægri.

Að sjálfsögðu hafa menn á netinu ekki látið þetta framhjá sér fara og hafa búið til svokallað meme í tilefni af þessari þróun rokkarans.

Er Marilyn Manson að breytast í Nicolas Cage? Stórt er spurt á þessari mynd.



Mörgum þykir Cage ákaflega líkur Manson í eftirfarandi senu:





Hér má sjá Marilyn Manson á nýlegri mynd, þegar hann lenti á LAX-flugvellinum í Los Angeles. Hann splæsti í sparibrosið.

Er þessi maður að breytast í...

þennan?



Nicolas Cage fæddist þann 7. janúar 1964 og er því nýorðinn 51 árs. 

Marilyn Manson fæddist þann 5. janúar 1969 og er því nýorðinn 46 ára. Þeir félagarnar eru því í sama stjörnumerki, þeir eru steingeitur.

Samkvæmt Stjörnuspá Siggu Kling kemur fram að félagarnir geti búist við því að gömul leiðindi taki sig upp á ný nú í janúar. Þeir eru báðir á hápunkti ársins nú í janúr og alveg fram í lok febrúar, samkvæmt Siggu. 

„Mikill fögnuður verður í sambandi við fjármálin þín. Það ganga upp hlutir sem þú hefur grátið yfir og þegar líða tekur á get ég ekki betur séð en að þú getir farið að eyða peningum í vitleysu. Og það er alveg nauðsynlegt í og með," segir jafnframt í stjörnuspánni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×