Glamour

Er Kylie bara eftirherma?

Ritstjórn skrifar
Kyile á Coachella
Kyile á Coachella Glamour/Instagram
Raunveruleikastjarnan og varalitaprinsessan Kylie Jenner, vakti athygli fyrir óvenjulegan klæðnað á Coachella hátíðinni sem fór fram um helgina.

Þar klæddist hún meðal annars hvítu bikiní úr pallíettum með stórum augum á. Við þetta skartaði hún regnbogalituðu hári sem hún hafði fléttað.

En þar sem máttur samfélagsmiðlana er mikill, þá fóru einhverjir að taka eftir því að Kylie var í samskonar dressi og önnur stelpa sem búsett er í Nýja Sjálandi. 

Ef Instagramsíðan hennar er skoðuð kemur í ljós að þremur vikum áður en Kylie klæddist bikiníinu við regnbogahárið, hafði þessi stelpa birt mynd af sér í sama bikiní með alveg eins hár.

Er Kylie þá ekki eins frumleg og sniðug og við héldum?






×