Skoðun

Er Ítalía núna öruggt land fyrir flóttafólk?

Toshiki Toma skrifar
Í desember 2015 hætti Útlendingastofnun að senda flóttafólk til baka til Ítalíu, en ummæli innanríkisráðherra á Alþingi í september sama ár voru tekin upp í fjölmiðlum en hann sagði að ,,Grikkland, Ítalía og Ungverjaland væru ekki örugg lönd og Íslendingar sendu ekki fólk þangað.“

En nú í janúar er búið að ákveða að vísa mörgu flóttafólki sem er hérlendis á brott til Ítalíu. Mér virðist sem yfirvöld hafi komist að endanlegri niðurstöðu um að það sé í lagi að senda að senda flóttafólk til baka til Ítalíu. En er það rétt?

Aðeins í kringum mig eru átta manneskjur sem verða sendar til Ítalíu, sumir sem eru með landvistarleyfi fyrir fyrir flóttafólk frá Ítalíu. En saga þeirra er sú sama. ,,Ég gat hvorki fundið vinnu mér til framfærslu né þak yfir höfuðið. Ég neyddist til að dvelja á götunni og gat stundum fengið mat í kærleiksboði kirkju nokkurrar.“

Tveir af átta vinum mínum verða sendir til Ítalíu þó að það hafi aðeins verið millilendingarstaður þeirra. Þeir munu fá landvistarleyfi í Ítalíu en lenda í sömu aðstæðum og hinir sex hafa upplifað.  

Er í alvöru í lagi að senda flóttafólk baka til Ítalíu? Mig langar að fá formlegt álit yfirvaldanna um aðstæður flóttamanna á Ítalíu. Já, það voru nokkur ummæli frá innanríkisráðuneytinu í vetur sl. eins og ,,Ítalía er ekki eftirsóknarverður staður fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, en ekki svo slæmur fyrir ungan, sterkan mann.“

Eru þessi ummæli endanlegt álit yfirvaldanna sem fara með málefni flóttafólks hér á landi? Höfðu ráðuneytismenn tækifæri til að hlusta á flóttafólk beint sem hafði verið í Ítalíu og haft eitthvað að segja?  

Gallinn við þetta álit er að með því er reynt að aðskilja veitingu landvistarleyfis og þess að mannsæmandi lífskjör manneskju séu tryggð þannig að viðkomandi umsækjandi um alþjóðlega vernd geti hafið nýtt líf í viðkomandi samfélagi.  

Að taka á móti manneskju sem flóttamanni er ekki aðeins að veita honum landvistarleyfi, heldur gefa honum mannsæmandi tækifæri í nýju samfélagi.

Íslenskum stjórnvöldum er þetta atriði ekki ókunnungt. Ef við lítið til  móttöku flóttamanna frá Sýrlandi sem boðið er hingað af ríkinu þá er því vel sinnt. Hvers vegna þurfum við þá að nota öðruvísi viðmið þegar um hælisleitendur er að ræða? Megum við segja eins og: ,,En það vandamál tilheyrir Ítalíu en ekki okkur“?

Ég ætla ekki að ásaka Ítalíu vegna aðstæðna flóttafólks þar, þar sem það blasir við að í landinu eru alltof margir flóttamenn nú þegar en Ítalir geta sinnt almennilega. Er þá ekki hægt að sjá málið sem tækifæri til að ,,létta bróðurbyrði“? Og um leið mun fólkið nýtast á íslenskum vinnumarkaði þar sem vantar vinnuafl?

Ferköntuð vinnubrögð og skortur á sveigjanleika flækja málefni flóttafólks og búa til fleiri vandamál. Að mínu mati hafa síðustu ár sannað þetta.  

Ég óska innilega þess að yfirvöldin hér hætti að senda flóttafólk baka til Ítalíu og gefa því mannsæmandi tækifæri á Íslandi.

Toshiki Toma, prestur innflytjenda.




Skoðun

Sjá meira


×