Skoðun

Er hótelborgin að verða óbyggileg?

Halldór Þorsteinsson skrifar
Ég veit ekki hverju þú svarar því, lesandi góður, en ég svara því hiklaust játandi. Hótel og svokallaðar „lundabúðir“ blasa við manni á öðru hverju götuhorni og flest ef ekki allt virðist miðast við ætlaðar þarfir og viðskipti við erlenda ferðamenn, sem er að vissu marki ósköp skiljanlegt, þar sem við lifum að verulegu leyti á þeim, en hins vegar eiga borgarbúar alls ekki skilið að vera vanræktir þeirra vegna.

Það er svo ótalmargt sem er ámælisvert í rekstri borgarstjórnarinnar, eins og til að mynda sorphirðan, sem er í fullkomnum ólestri. Væri ekki þjóðráð að bjóða hana út eins og tíðkast hjá flestum sveitarfélögum? Ekki bætir heldur úr skák að borgarsjóður skuli vera rekinn með sívaxandi halla eftir því sem hermt er. Maður hefur það ósjálfrátt á tilfinningunni að þeir valdamenn sem borginni stjórna séu í einskonar sandkassaleik og hagi sér eiginlega eins og hálfgerðir óvitar eftir verkum þeirra að dæma og líka skoðunum á flestum hlutum.

Einkabíllinn er greinilega þyrnir í þeirra augum. Að þrengja og mjókka götur höfuðborgarinnar er þeim þrálátt keppikefli svo ekki sé minnst á gjörsamlega ótímabæra fækkun bílastæða.

Svo er ekki úr vegi að geta þess að þessa óvita dreymir um að reisa glannalega háar íbúðarbyggingar á frekar óheppilegum stöðum, sem myndi víða byrgja fyrir útsýni yfir Sundin blá og Esjuna.

Víða pottur brotinn

Sumum kann að finnast helst til nokkuð djúpt í árinni tekið að kalla Dag B. Eggertsson og alla hans blindu meðreiðarsveina óvita, en óhætt er engu að síður að fullyrða að ekki sé sláandi skynsemisbragur yfir breytni þeirra og framkvæmdabrölti í samgöngu- og borgarskipulagsmálum. Á þeim vettvangi er því miður víða pottur brotinn.

Nú langar mig til að leggja eftirfarandi spurningu fyrir borgarstjórann og hans fylgispaka lið. Hvernig vogið þið ykkur að ætla að hrófla við Reykjavíkurflugvellinum, þegar meirihluti þjóðarinnar vill hafa hann á sínum gamla, góða og rétta stað? Skiljið þið ekki hvað felst í orðinu lýðræði?

Greinilega ekki eftir skoðunum ykkar og viðbrögðum að dæma.

Að lokum skora ég á alla sanna og skynsama Íslendinga að róa öllum árum að því að koma Degi B. Eggertssyni burt úr borgarstjórastólnum ásamt allri þeirri spöku hirð jákálfa sem situr í kringum hann.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×