Lífið

Er góða veislu gjöra skal

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Marta Rún Ársælsdóttir segist hafa verið hrifin af gyllta litnum í ár og hann hafi verið talsvert áberandi í eldhúsinu hjá henni. "Svo finnst mér gull alltaf svo hátíðlegt, það er svona smá gullþema hjá mér.“
Marta Rún Ársælsdóttir segist hafa verið hrifin af gyllta litnum í ár og hann hafi verið talsvert áberandi í eldhúsinu hjá henni. "Svo finnst mér gull alltaf svo hátíðlegt, það er svona smá gullþema hjá mér.“ Vísir/Ernir
Flestir munu sjálfsagt draga fram sparistellið og góða dúkinn þegar sest verður til borðhalds í kvöld. Þegar lagt er á jólaborðið er oft öllu til tjaldað en það þarf þó ekki að vera flókið að ljá borðinu hátíðarbrag, smá kertaljós og jólagreinar setja hátíðarsvip á borðið. Marta Rún, bloggari á Femme.is og starfsmaður í NORR11, lagði á borð fyrir Fréttablaðið.

Gylltu hnífapörin og gullslegnu greinarnar ljá borðinu hátíðlegan blæ. Það þarf ekki að fara offari í flóknum sérvíettubrotum korter í jól, það er líka hátíðlegt og fallegt að brjóta servíetturnar einfaldlega saman, skella smá snæri utan um, stinga nokkrum jólalegum greinum og einföldu nafnspjaldi á servíettuna.

„Þó maður viti nú nöfn þeirra sem eru að borða hjá manni um jólin þá er ekkert persónulegra en nafnið manns og mér finnst gaman að vera með merkt sæti, það setur punktinn yfir i-ið hvort sem það er um jól eða áramót,“ segir Marta glöð í bragði.

Gyllti liturinn er í forgrunni hjá Mörtu enda hátíðlegur með eindæmum.

Þegar jólablöndunni er skolað niður eru margir sem draga fram sín fínustu glös enda gaman að drekka úr fallegum glösum á aðfangadag, þessi hér eru frá Fred­erik Bagger og fást í NORR11.

Hátíðarkokteill

Yfir jólahátíðina er gaman að gera vel við sig í mat og drykk.

Marta Rún setti saman þennan hátíðarkokteil sem er í senn fallegur fyrir augað, einfaldur og góður. Það er einfaldlega blanda sem getur ekki klikkað.

Gott freyðivín (ég mæli með Prosecco fyrir þennan drykk því það er ekki of sætt)

Jarðarberja-Mickey Finn (notað í drykkinn eins og jarðarberjasíróp)

Rósmarínstöngull

Hrásykur

Byrjaðu á því að dýfa glasinu í smá vatn, dýfðu því svo í hrásykurinn og láttu þorna í smá stund.

Helltu prosecco í glasið.

Varlega hellir þú síðan jarðarberja-Mickey Finn í glasið. Ég setti það í rör sem ég hélt fyrir neðst og sleppti svo innihaldinu í botninn á glasinu.



Á endanum seturðu rósmarínstöngul út í glasið og þá er drykkurinn tilbúinn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×