Fótbolti

Er Giroud á leið til Atletico Madrid?

Anton Ingi Leifsson skrifar
Er Giroud á leið burt frá Chelsea?
Er Giroud á leið burt frá Chelsea? vísir/getty
Atletico Madrid hefur sett sig í samband við Chelsea og rætt þann möguleika að fá Oliver Giroud að láni. Sky Sports greinir frá.

Chelsea er ekki sagt áhugasamt um þetta en vilji frekar ræða að Atletico kaupi franska framherjann af Chelsea.

Hann var hluti af franska landsliðinu sem vann HM á dögunum en Giroud skoraði ekki mark á mótinu. Hann spilaði sjö leiki á HM og var mikilvægur hluti af liðinu.

Maurizio Sarei er sagður áhugasamur um að fá Gonzalo Higuain frá Juventus. Það gæti fært Giroud aftar í goggunarröðina og því er hann mögulega sagður vilja fara.

Aðalskotmark Atletico er þó Nikola Kalinic, framherji AC Milan, en hann er enn að bíða eftir því hvort að Milan leyfi honum að fara. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×