Skoðun

Er fátækt aumingjaskapur?

Ásta Dís Guðjónsdóttir skrifar
Í tilefni af alþjóðabaráttudegi gegn fátækt minnum við á að 6,7% eða 22.279 Íslendingar búa við skort á efnislegum gæðum og 2% eða 6.650 menn, konur og börn, venjulegt fólk eins og ég og þú, búa við verulegan skort.

Fátækt

Enginn velur sér að búa við fátækt, henni veldur samspil ólíkra þátta sem halda viðkomandi föstum í flóknum aðstæðum sem hann ræður ekki við að komast úr. Ástæður eru yfirleitt margar og samfléttaðar en þær geta verið veikindi, fötlun, illur aðbúnaður, skortur á menntun, erfiðar félagslegar aðstæður, skortur á stuðningsneti o.s.frv. Svo NEI, fátækt er ekki aumingjaskapur. Það þarf hörku, úthald, styrk og útsjónarsemi til að takast á við hvern einasta dag í erfiðum aðstæðum, einangraður á bak við skömmina sem fylgir fátækt í ríku samfélagi.

Þeir sem búa við kröpp kjör reiða sig á starf hjálparsamtaka en slík samtök vinna mikið og óeigingjarnt starf og það ber að þakka. Hjálparsamtök veita stórum hópi fólks m.a. mataraðstoð, annaðhvort með beinum matargjöfum eða með matarkortum sem nýta má í verslunum.

PEPP Ísland

Samtökin EAPN eða European Anti Poverty Network voru stofnuð af hjálparsamtökum í Brussel árið 1990 til að berjast gegn fátækt innan Evrópu, þau starfa í dag í 32 löndum en hér á Íslandi hafa þau starfað síðan 2011. Innan samtakanna er grasrótarstarf sem kallast People experiencing Poverty eða PeP en við íslenskuðum það og köllum starfið Pepp og okkur Peppara enda valdefling stór hluti af starfi okkar. Fyrr á árinu stóðum við fyrir málþingi um notendasamráð sem tókst mjög vel en að þessu sinni blásum við til umræðna um mataraðstoð. Við bjóðum til morgunverðarfundar í samstarfi við Velferðarvaktina og með öllum helstu hjálparsamtökum landsins ásamt fólki úr fátækt á Grand Hóteli 21. október kl. 8:30 – 11:30 Almennur aðgangseyrir 1.000.- Frítt fyrir fólk í fátækt.

Mataraðstoð

Á fundinum koma saman þeir sem veita og þeir sem nota aðstoðina, gerð verður grein fyrir niðurstöðum lauslegrar könnunar á fyrirkomulagi mataraðstoðar og velt upp spurningunni hvort að mögulegt sé að veita frekari og fjölbreyttari þjónustu.

Einnig verður flutt erindi um strauma og stefnur í mataraðstoð í Evrópu og skoðað hvort fólk telji finnast leið út úr mataraðstoð. Það er von okkar að allir sem málefninu tengjast mæti á fundinn til að ræða um mataraðstoð og hvert hún stefnir. Hægt er að skrá sig á morgunverðarfundinn um mataraðstoð á netfanginu postur hjá vel.is.

 




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×