Viðskipti erlent

Er Facebook á leiðinni í þrívídd?

ingvar haraldsson skrifar
Chris Cox, yfirmaður vöruþróunar hjá Facebook, sagði  að stefnt væri að því að notendur gætu bæði horft á og deilt efni auðveldlega fyrir þrívíðan sýndarveruleika.
Chris Cox, yfirmaður vöruþróunar hjá Facebook, sagði að stefnt væri að því að notendur gætu bæði horft á og deilt efni auðveldlega fyrir þrívíðan sýndarveruleika. nordicphotos/afp
Facebook vinnur nú við að hanna smáforrit eða öpp fyrir þrívíðan sýndarveruleika. Þessu sagði Chris Cox, yfirmaður vöruþróunar hjá Facebook, frá á forritunarráðstefnu í Kaliforníu í dag. The Verge greinir frá. 

Á síðasta ári keypti Facebook tæknifyrirtækið Oculus VR á 2 milljarða dollara, um 260 milljarða íslenskra króna á núverandi gengi, en Oculus VR framleiðir sýndarveruleikatækið Oculus Rift.

Cox sagði  að stefnt væri að því að notendur gætu bæði horft á og deilt efni auðveldlega fyrir þrívíðan sýndarveruleika. „Við viljum að það verði auðvelt fyrir alla að skapa sýndarheim með því að hlaða inn myndum eða myndböndum, hvort sem það er dæmigerður notandi eða heimsfræg manneskja á borð við Beyonce,“ sagði Cox.

Ekki er búið að gefa út hvernig forritin muni virka nákvæmlega. Þá sagði Cox sagði að talsverður tími væri í að forritið kæmi út.


Tengdar fréttir

Eve Valkyrie vinnur til verðlauna

EVE: Valkyrie, nýr tölvuleikur sem væntanlegur er frá CCP, hlaut verðlaun á E3 ráðstefnunni sem nýlokið er í Los Angeles.

Veðjar á framtíð tölvutækninnar

Samfélagsmiðillinn Facebook hefur keypt fyrirtækið Oculus fyrir 220 milljarða króna. Oculus þróar sýndarveruleikatæki sem er ætlað fyrir tölvuleikjamarkaðinn.

Er sýndarveruleiki framtíð tölvuleikja, aftur?

Tæknifyrirtæki hafa sett mikið fjármagn í þróun sýndarveruleikabúnaðar á undanförnum árum. Leikir eru þó einungis byrjunin og stefnt er að því að innleiða sýndarveruleika í daglegt líf fólks.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×