Viðskipti innlent

Er enginn útrásarvíkingur, segir Björgólfur Thor

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Verðlaunaljósmynd frá dögum hrunsins. Björgólfur Thor Björgólfsson fer á fund Geirs H. Haarde forsætisráðherra ásamt bankastjórum bankans seint um kvöld 29. september 2008 eftir að Glitnir hafði verið þjóðnýttur. Skömmu síðar féll bankinn líka.
Verðlaunaljósmynd frá dögum hrunsins. Björgólfur Thor Björgólfsson fer á fund Geirs H. Haarde forsætisráðherra ásamt bankastjórum bankans seint um kvöld 29. september 2008 eftir að Glitnir hafði verið þjóðnýttur. Skömmu síðar féll bankinn líka. Fréttablaðið/Daníel
Í nýrri bók sinni hafnar Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir því að vera settur í flokk með „útrásarvíkingunum“ íslensku.

Hluta af óvæginni umræðu og ákveðinni hörku sem mætti Björgólfi Thor hér á landi eftir hrun segir hann skýrast af því að hann hafi verið flokkaður með „útrásarvíkingum“ sem fjárfest hafi í erlendum eignum með ódýru fjármagni frá íslensku bönkunum.

„Hugtakið, sem notað var í fjölmiðlum á góðlátlegan hátt fyrir hrun, varð að skammaryrði eftir hrun, þægilegt uppnefni sem allir gátu beint reiði sinni að,“ segir hann í bók sinni, Billions to Bust — and Back.

Ný bók Björgólfs Thors.
„Ég hafna því að vera settur í flokk með slíkum viðskiptamönnum. Ég hef búið erlendis í 26 ár, meira en hálfa ævina. Ég á enga íslenska sjóði til að fjárfesta erlendis,“ segir Björgólfur Thor og bendir á hann hafi aflað fjármuna sinna erlendis, en gert þau mistök að moka stórum hluta þeirra heim til Íslands. 

„Aðrir hófu viðskipti sín á Íslandi og skuldsettu eignir sínar heimafyrir til þess að kaupa fyrirtæki í útlöndum. Ég fór hina leiðina að þessu og kom með peninga inn í landið.“

Björgólfur Thor bendir á að þegar hann hafi selt fyrirtæki sín í Rússlandi, Búlgaríu og Tékklandi hafi hann fengið greitt með reiðufé. 

„Þeir peningar fóru í að borga fyrir Actavis og var spýtt inn í íslenskt fjármálakerfi. Ég seldi ekki einn einasta hlut í Landabankanum, Actavis eða Straumi, fjárfestingabankanum þar sem ég var stjórnarformaður.“


Tengdar fréttir

Leiðréttir goðsagnir um hrunið

Í nýrri bók Björgólfs Thors Björgólfssonar fjárfestis sem út kemur í dag segist hann fjalla um efnahagshrun Íslands með hálfum huga. Reiði og leit að sökudólgum, auk harðra viðbragða við eina viðtalinu sem hann fór í eftir hrun, hafi dregið úr honum.

Björgólfur Thor gat ekki hjálpað föður sínum

Í nýrri bók sinni gerir Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir upp við fortíðina og viðskiptalegan viðskilnað sem varð á milli hans og Björgólfs Guðmundssonar föður hans. Björgólfur segir föður sinn hafa dreift kröftum sínum um of fyrir hrun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×