Lífið

Er elst af fimm ættliðum

Petrína með langalangömmustúlkuna Sölku Sól Björgvinsdóttur, næst er móðir Sölku Sólar, Sólveig Rut Sigurðardóttir, langamman Rut Andersen og amman Ásta Guðjónsdóttir. Fréttablaðið/Eyþór
Petrína með langalangömmustúlkuna Sölku Sól Björgvinsdóttur, næst er móðir Sölku Sólar, Sólveig Rut Sigurðardóttir, langamman Rut Andersen og amman Ásta Guðjónsdóttir. Fréttablaðið/Eyþór
Petrína Kristín Steindórsdóttir er 85 ára í dag. Hún á fjóra ættliði fyrir framan sig og það í beinan kvenlegg. „Við vorum allar frekar ungar þegar við fæddum,“ segir hún og kveðst sjálf hafa verið 18 ára þegar hún eignaðist dótturina Rut, sem nú er orðin langamma.

Petrína situr við glugga í vistlegu herbergi á Hrafnistu í Reykjavík þar sem runni teygir sig upp á rúðuna að utanverðu. „Mér finnst ég mjög heppin að komast hingað. Þetta er góður staður og ég er á jarðhæð þar sem ég get gengið beint út,“ segir hún.

Í Bolungarvík eru æskustöðvar Petrínu en hún kveðst hafa flutt suður milli tvítugs og þrítugs. „Ég bjó lengst á Nönnugötu 6 með manninum mínum, Jóhannesi Jóhannessyni, hann fæddist í því húsi og dó þar líka fyrir þremur árum, þá 91 árs. Ég var um tíma á Nönnugötunni eftir það en svo veiktist ég og þurfti á spítala. Nú er ég sæmilega hraust en svolítið máttlaus. Á svolítið erfitt með að ganga úti en er alveg ágæt innan dyra.“

Petrína er rík af afkomendum, eignaðist sex börn svo nóg var að gera. Hún kveðst líka hafa unnið hin ýmsu störf utan heimilis, meðal annars í fatadeild Hagkaupa á Laugavegi um tíma. „Ég hef alltaf haft gaman af fötum svo það hentaði mér vel,“ segir hún og bætir við: „Mér fannst ég hraustari ef ég vann utan heimilis, það fór betur með mig en að vera alltaf heima.“

Tónlist hefur glatt Petrínu mikið gegnum tíðina. Sjálf söng hún í kirkjukór Ásprestakalls og tók þá þátt í helgihaldi á hinum ýmsu deildum Hrafnistu. „Ég er ansi kunnug innan dyra hér því hingað kom ég oft,“ segir hún. „Svo starfaði ég í Kristniboðsfélagi kvenna sem er elsta kvenfélag landsins.“

Sá fallegi siður tíðkast á Hrafnistu að bjóða heimilisfólki upp á vöfflur eða tertu með kaffinu þegar einhver á stór­afmæli og út af því verður ekki brugðið í dag. „Þær ætla að baka fyrir mig vöfflur, stúlkurnar,“ segir Petrína. „Það finnst mér voða gott, allir eru hrifnir af vöfflum.“ gun@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×