Skoðun

Er eini flugvöllurinn í Keflavík?

Ragnar Sverrisson skrifar
Rör eru til margra hluta nytsöm. En þegar þau eru notuð til þess að rýna flókin málefni verður útkoman ekki alltaf sem skyldi enda verður þröngsýni þá oftast ofan á.

Þetta flaug í gegnum huga mér þegar ég hlustaði á vin minn Björgólf Jóhannsson á Bylgjunni í morgun (16.09.) þar sem hann fjallaði um hvað þyrfti að gera til þess að taka á móti gríðarlegri fjölgun ferðamanna til landsins næstu árin. Í þessu spjalli voru eingöngu ræddar æskilegar framkvæmdir til að bæta aðstöðuna á Keflavíkurflugvelli svo allt færi ekki í enn meiri kássu á þeim ágæta stað. Þar með er gengið út frá því að auknum fjölda erlendra ferðamanna verði einasta hleypt í gegnum einar dyr – hið gullna hlið Íslands. Þetta hlið er á Keflavíkurflugvelli og svo að skilja að þar verði allir ferðamenn til landsins að fara í gegn í framtíðinni; ekki einu sinni ástæða til að velta fyrir sér öðrum möguleikum. Þetta er þröng sýn í sinni venjulegu mynd en í máli þessu þarf meiri víðsýni.

Fleiri möguleikar

Eins og kunnugt er eigum við fleiri alþjóðaflugvelli en þann í Keflavík. Þess vegna er full ástæða til að ræða hvaða hlutverki þeir geta gegnt í framtíðinni við móttöku erlendra ferðamanna. Sjálfur þekki ég vel til eins þeirra, Akureyrarflugvallar, og get fullyrt að með því að byggja við flugvallarhúsið og bæta planið þar fyrir framan er hægur vandi að létta eitthvað á fluginu til Keflavíkur sem er að kaffæra allt þar á bæ. Flugbrautin á Akureyri er nú þegar nægjanlega löng til að taka á móti stærstu flugvélum og miklir möguleikar í bænum og nágrannabyggðum til að taka á móti enn fleiri erlendum ferðamönnum alla daga ársins. Því er ekki ofsagt að hér á Akureyri eru miklir möguleikar til að stórauka þjónustu við ferðamenn.

Hvað getur kallast meira byggðamál en að móta og fylgja eftir markvissri atvinnustefnu á þessu sviði? Við heyrum nú harmakvein vegna ofbeitar í Keflavík á meðan ekki er hugað að því hvaða möguleikar eru fyrir hendi annars staðar sem nú eru vannýttir. Því er ástæða til að hvetja bæjarstjórn og alþingismenn kjördæmisins til að ganga fram í máli þessu og vinna markvisst að því að ljúka nauðsynlegum byggingaframkvæmdum við Akureyrarflugvöll og ganga frá planinu en efni í það bíður undir hlíðum Vaðlaheiðar.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×