Lífið

Er bara heima á vappinu með köttunum mínum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
„Núna horfi ég á bókaútgáfuna úr heimspekilegri fjarlægð og skil ekkert í æsingnum í fólki,“ segir Einar.
„Núna horfi ég á bókaútgáfuna úr heimspekilegri fjarlægð og skil ekkert í æsingnum í fólki,“ segir Einar. Vísir/Ernir

„Það er bara stórfínt að eiga afmæli,“ segir Einar Kárason rithöfundur hress. Hann er sextugur í dag og er búinn að halda upp á það.

„Ég fór með nánustu fjölskyldu minni út á land um síðustu helgi, konu, börnum, tengdabörnum og barnabörnum. Við leigðum okkur stórt og flott hús og höfðum það skemmtilegt þar.

Svo núna er bara eðlilegur þriðjudagur hjá mér, fótboltaæfing með strákunum, eins og ævinlega en ef ég þekki suma vini og kunningja rétt munu einhverjir reka inn nefið eða að minnsta kosti hringja. Ég verð bara heima við í rólegheitum að sinna mínum daglegu störfum.“

Spurður hvað hann sé að skrifa núna svarar Einar: „Það er nú ekkert til að segja frá, ég hef verið dálítið í því sem tengist sjónvarps- og kvikmyndaverkefnum, einnig skrifa ég opnugrein í dagblað í hverri viku, svo eru alltaf einhverjar bækur í pípunum og þar detta inn kaflar.“ 

Þetta haust er Einar ekki með neina nýja bók á markaðinum svo hann kveðst vera voða afslappaður.

„Yfirleitt hefur afmælisdagurinn minn verið markaður af upplestrum, viðtölum og spenningi yfir hvar bókin mín standi á vinsældalistanum en núna horfi ég á bókaútgáfuna úr heimspekilegri fjarlægð og skil ekkert í æsingnum í fólki. Er bara heima á vappi með köttunum mínum!“

Einar er alinn upp í Hlíðunum í Reykjavík af foreldrum sem báðir eru Vestfirðingar.

„Rætur mínar eru fyrir vestan, afar, ömmur, frændur og frænkur. Ég var mikið hjá þeim bæði á Ísafirði og í Hnífsdal og svo er ég ættaður úr Dýrafirðinum líka,“ lýsir Einar og kveðst hafa verið dálítið á sjó þegar hann var yngri. 

„Ég var háseti á alls konar döllum,“ rifjar hann upp.  „Það var svoleiðis þegar ég var í menntaskóla og háskóla að þá voru sumarfríin fjórir mánuðir og maður forframað­ist alveg jafn mikið á sumrin og veturna, sigldi til útlanda og var að vinna með fullorðnu fólki í Ísbirninum.

Við það efldist maður allur og lærði margt. Nú fer maður að tala eins og allt hafi verið betra í gamla daga!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×