LAUGARDAGUR 18. MAÍ NÝJAST 21:40

Sigurlíkur Íslands sagðar 1 á móti 125

FRÉTTIR

Er ballið að byrja?

Fréttablaðið Fastir pennar 27. september 2007 00:01
Þorvaldur Gíslason
Þorvaldur Gíslason

Hingað til lands kom um daginn maður að nafni Manuel Hinds, hagfræðingur og fyrrum fjármálaráðherra El Salvadors. Málflutningur Hinds vakti athygli víða um heim árin eftir 1990, þar eð hann varð einna fyrstur hagfræðinga til að brjóta hrun Sovétríkjanna til mergjar og lýsa því með þungum rökum, að áætlunarbúskaparlag Sovétríkjanna og leppríkja þeirra í Austur-Evrópu hlaut að bera dauðann í sér.

Það skerpti sýn Hinds á málið, að hann þekkti marga brestina að heiman, því að í El Salvador réðu fáeinir landeigendur, einkum kaffibændur, lögum og lofum um landið með þeim árangri, að þjóðartekjur á mann nú eru þar engu hærri en þær voru 1975. Þrjátíu ár fóru í súginn. Borgarastríðið 1980-92 var bein afleiðing af veldi landeigendanna og kostaði mikið mannfall og fólksflótta og lamaði efnahagslífið. Hinds var ráðherra skamma hríð 1979-80 og aftur 1995-99 og sá þá um að undirbúa myntbreytingu, sem fólst í að skipta þjóðmyntinni út og taka upp Bandaríkjadollara í staðinn til að stuðla að stöðugra fjármálalífi og minni verðbólgu.

Skömmu áður hafði Ekvador gert hið sama. Panama hefur notað dollara síðan 1904. Nokkrar Karíbahafs- og Kyrrahafseyjar nota Bandaríkjadollara í stað eigin gjaldmiðla, aðrar nota ástralska dollarann, enn aðrar nýsjálenzka dollarann. Nokkur smáríki í Evrópu nota með líku lagi evruna, til dæmis Andorra, Mónakó og San Marínó auk Páfagarðs og Svartfjallalands. Bútan og Nepal nota indverska rúpíann. Listann mætti lengja. Hinds hefur nýlega sent frá sér bók um peningamál, Playing Monopoly with the Devil (2006). Þar lýsir hann kostum þess, að smálönd leggi eigin þjóðmyntir til hliðar og notist við nærtækar heimsmyntir í staðinn. Þessum boðskap lýsti hann fyrir Gunnari Gunnarssyni fréttamanni í Speglinum í Ríkisútvarpinu í síðustu viku og einnig í grein í Viðskiptablaðinu. Hinds varar við skuldasöfnun Íslendinga erlendis: hann hefur séð þetta allt saman áður á heimaslóðum. Hann mælir með því í ljósi reynslunnar, að Íslendingar taki upp evruna. „Sprenghlægilegt," segir Seðlabankinn.



Vaxtabyrðin þyngist

Erlendar skuldir Íslendinga hafa aukizt hratt að undanförnu. Skuldirnar héldust nálægt 50 til 60 prósentum af landsframleiðslu frá 1980 og fram undir 2000, en þær voru um mitt þetta ár komnar upp fyrir 500 prósent af landsframleiðslu samkvæmt nýjum tölum Seðlabankans. Vaxtabyrðin vegna skuldanna hefur þyngzt, þar eð eignirnar, sem keyptar hafa verið fyrir erlenda lánsféð, bera minni vexti og arð en skuldirnar. Með vaxtabyrði er átt við vaxtagjöld af erlendum skuldum umfram vaxtatekjur af erlendum eignum í hlutfalli við útflutning vöru og þjónustu. Vaxtabyrðin var á bilinu átta til níu prósent af útflutningstekjum 2003 og 2004 og jókst upp í tólf prósent af útflutningstekjum 2005 og 25 prósent af útflutningstekjum 2006. Tölur Seðlabankans sýna, að vaxtabyrðin var um mitt þetta ár komin upp í 32 prósent af útflutningstekjum. Þessar tölur sýna, að Íslendingar taka nú ný lán til að borga vexti af eldri skuldum.

Aukning vaxtabyrðarinnar vitnar einnig um það, að erlenda lánsfénu hefur ekki öllu verið varið til arðbærrar eignamyndunar, heldur einnig til neyzlu. Skammtímaskuldirnar við útlönd hafa aukizt hratt að undanförnu: þær voru innan við 50 prósent af útflutningstekjum 2003, en voru um mitt þetta ár komnar upp fyrir 700 prósent af útflutningstekjum. Þessi aukning stafar meðal annars af vaxtamunarviðskiptum, þar sem menn taka lágvaxtalán erlendis og festa féð í íslenzkum hávaxtabréfum (jöklabréfum) í þeirri von, að gengi krónunnar haldist hátt. Sú von verður sífellt veikari, sýnist mér, eins og ég hef lýst nú síðast í grein í tímaritinu Herðubreið.



Sprenghlægilegt?
Þegar vaxtagreiðslur til erlendra lánardrottna gleypa þriðjung útflutningstekna, þá er að því skapi minna af gjaldeyristekjunum aflögu til að standa straum af innflutningi, svo að skuldirnar aukast þá hraðar og hraðar. Ef svo fer, að ekki reynist unnt að velta skammtímaskuldunum áfram, þarf Seðlabankinn að ganga á gjaldeyrisforða sinn til að jafna metin og verja gengi krónunnar. En gjaldeyrisforðinn hrekkur nú aðeins fyrir tíunda parti skammtímaskuldanna, svo að hætt er við, að gengið láti þá undan. Þetta er þekkt munstur utan úr heimi, og gildir þá einu, hvort viðkomandi lönd eru rík eða fátæk. Lögmál efnahagslífsins eru í grundvallaratriðum hin sömu um allan heim. Ef Ísland hefði gengið í Evrópusambandið um leið og Finnland og Svíþjóð 1995 og tekið upp evruna 1999, væri engin sérstök hætta á ferðum hér heima núna. Sprenghlægilegt?
Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Fastir pennar 18. maí 2013 12:00

Vandinn við hvíta lygi

Ekki er beinlínis hægt að segja að menn hafi skrökvað í kosningabaráttunni um stöðu ríkissjóðs og yfirvofandi hættu á greiðsluþroti þjóðarbúsins vegna gjaldeyrisskorts. En það á við talsmenn fráfarand... Meira
Fastir pennar 18. maí 2013 06:00

300 ára gamlar kennsluaðferðir

Háskólaumhverfið eins og við þekkjum er um þrjú hundruð ára gamalt. Þótt prófessorar hafi fyrir löngu tekið upp á því að nota tæknina til að varpa upp glærum og festa hljóðnema við skyrtuflipana hefur... Meira
Fastir pennar 17. maí 2013 15:00

Selfoss og Maribo

Sumir vilja láta ríkið selja áfengi til að takmarka aðgengi fólks að því. Ég er ósammála en ég skil rökin. En í umræðunni má stundum heyra önnur rök: Að ríkiseinokun sé nauðsynleg til að tryggja gott ... Meira
Fastir pennar 17. maí 2013 11:01

Öflugri hópur, betri fréttir

Fréttastofur 365 miðla sameinast í eina. Meira
Fastir pennar 16. maí 2013 14:00

Júróvísa

Jæja, það fer víst ekki framhjá neinum að í dag er haldinn hátíðlegur alþjóðlegur Eurovision-dagur um víða veröld og ósköp fátt sem flest okkar geta gert í því. Meira
Fastir pennar 16. maí 2013 14:00

Tvær frjálsar hendur, slef og tunga

Mér hafa borist óvenju margar fyrirspurnir um munnmök undanfarið og þá sérstaklega um tott. Það er kannski ekki skrítið í ljósi þess hvernig munnmök eru stunduð í klámi og fólk svo reynir að leika slí... Meira
Fastir pennar 16. maí 2013 07:00

Þvingur, lím og stærðfræðijöfnur

Ein mesta meinsemd menntakerfis Íslendinga er hversu fáir nemendur velja starfs- og iðnnám. Félög atvinnurekanda hafa svo oft kallað á umbætur án þess að því hafi verið svarað að skömm er að. Meira
Fastir pennar 15. maí 2013 09:00

Stokka upp eða láta það springa?

Aðsókn í kennaranám hefur minnkað um helming. Fréttablaðið sagði frá því í gær að árið 2006 hefðu 419 manns sótt um að hefja kennaranám við Háskóla Íslands, en 203 í fyrra. Árið 2012 var aðeins 13 ums... Meira
Fastir pennar 14. maí 2013 11:30

Blindur, brúnn og hrukkóttur

Nú þegar sumarið er komið bíðum við eftir sólinni sem yljar okkur og öllu öðru, hún glæðir gróðurinn lífi og það hleypur viss kátína í unga sem aldna. Meira
Fastir pennar 14. maí 2013 11:15

Ofbeldi gegn ófæddum börnum

Mæðradagurinn var á sunnudaginn með tilheyrandi yfirlýsingum á Facebook um hversu dásamlegar mæður fólk ætti almennt. Svo rammt kvað að fullyrðingunum um stórkostleika mæðranna að einhver benti á að þ... Meira
Fastir pennar 13. maí 2013 07:00

Valfrelsi með humrinum

Viðbrögð við ummælum Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, formanns Heimdallar, um bann við sunnudagsopnun vínbúða, hafa verið vægast sagt öfgakennd. Áslaug svaraði spurningu Fréttatímans og sagðist trúa a... Meira
Fastir pennar 13. maí 2013 07:00

Lækningar fremur en refsingar

Eiturlyf. Sjálft orðið er hlaðið sprengikrafti: ?eitur? er það sem skaðar okkur en ?lyf? er það sem bætir líðan okkar til líkama og sálar. Annað orðið vísar til eyðingar, hitt til lækninga. Meira
Fastir pennar 10. maí 2013 07:00

Sumarbústaðir þjóðarinnar

Ég er nýkominn frá Kanaríeyjum. Á suðurhluta Tenerife, þar sem eitt sinn var bara eyðimörk, er nú ferðamannaparadís með alls konar veitingastöðum og hótelum. Allt byggt frá grunni og vissulega missmek... Meira
Fastir pennar 10. maí 2013 07:00

45.000 fleiri í hvalaskoðun

Í gær var fyrsta hrefnan drepin í Faxaflóa, rétt fyrir utan skoðunarlínuna svokölluðu. Í fyrra tókst að drepa fimmtíu og þrjú dýr og í ár ætla veiðimenn að gera enn betur. Þeir segja eftirspurnina mik... Meira
Fastir pennar 09. maí 2013 07:00

Sveitarfélögum fækkað um 62

Á Íslandi eru sjötíu og fjögur sveitarfélög. Þeim mætti fækka um sextíu og tvö samkvæmd tillögum svokallaðrar Verkefnastjórnar Samráðsvettvangs en þátttakendur í honum eru leiðtogar stjórnmálaflokka, ... Meira
Fastir pennar 08. maí 2013 07:00

Tækifæri í tollalækkun

Þegar fréttist af Bjarna Benediktssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni í Krónunni í Mosfellsbæ að kaupa inn fyrir stjórnarmyndunarviðræðurnar í sveitinni sendu Samtök verzlunar og þjónustu formönnunum... Meira
Fastir pennar 07. maí 2013 07:00

Neðrideildarleikur í Noregi

Dómarar í knattspyrnuleikjum meistaradeildar karla fá 156% hærri laun en þeir sem dæma leiki í efstu deild kvenna. Meira
Fastir pennar 06. maí 2013 08:30

Kaupum álfinn

Í dag hefst árleg álfasala SÁÁ og stendur út vikuna. SÁÁ eru félagasamtök sem reka sjúkrahúsið Vog og fjölda annarra meðferðarstofnana. Álfasalan er liður í að fjármagna barna- og fjölskyldudeild SÁÁ.... Meira
Fastir pennar 06. maí 2013 08:30

Lærum að leika okkur

Þegar maður horfir á enska sakamálamynd þátt í sjónvarpinu sem gerð er upp úr bók eftir Agöthu Christie er ánægjan ekki endilega fólgin í því að brjóta heilann um plottið – er það ekki alltaf un... Meira
Fastir pennar 04. maí 2013 06:00

Umtalsverð áhætta í fjármálakerfinu

Þessi jákvæða þróun gefur þó ekki tilefni til að slakað sé á árvekni gagnvart þeirri umtalsverðu áhættu í fjármálakerfinu sem enn er til staðar.“ Meira
Fastir pennar 04. maí 2013 06:00

Huga verður að grunninum

Eftirtektarverður árangur frumkvöðlanna sem að sprotafyrirtækinu CLARA standa sýnir í hnotskurn um hvers konar verðmæti er að tefla í þessum í geira nýsköpunar og tækni. Meira
Fastir pennar 03. maí 2013 07:00

Fáum 2007 aftur

Einn af mínum uppáhaldshlaupabolum er úr Reykjavíkurmaraþoni Glitnis árið 2007. Bolurinn er úr svona rauðu pólýesterefni sem hrindir frá sér vökva. Ef ég set hann í þvottavél þá kemur hann gott sem þu... Meira
Fastir pennar 03. maí 2013 07:00

Gjald til bjargar Þingvöllum

Óvenjumikil aðsókn kafara hefur verið að Silfru á Þingvöllum það sem af er ári, eins og Fréttablaðið sagði frá fyrr í vikunni. Tvö þúsund kafarar hafa stungið sér í gjána í marz og apríl, miklu fleiri... Meira
Fastir pennar 02. maí 2013 20:00

Píkan þarf ekki að láta "skvísa“ sig upp

Um daginn var ég að versla í matvöruverslun og mig vantaði dömubindi, mín tegund var ekki til svo ég fór að velta fyrir mér úrvalinu og tók eftir að í boði eru dömubindi með lykt. Ég velti því fyrir m... Meira
Fastir pennar 02. maí 2013 09:00

Jákvæð mismunun í Kauphöll Íslands

Fyrir fimm árum var aðeins einn af hverjum tíu stjórnarmönnum í fyrirtækjum skráðum í Kauphöll Íslands kona. Ein af hverjum tíu. Þrátt fyrir allt tal um jafnrétti, nýja tíð og framsýna hugsun komumst ... Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Er ballið að byrja?
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000