Gagnrýni

Epísk „feel-good“ mynd

Þórður Ingi Jónsson skrifar
MYND/Skjáskot
Boyhood



Leikstjóri: Richard Linklater



Rotten tomatoes: 99%

IMDB: 8,7

Metacritic: 100

Boyhood er nýjasta mynd bandaríska leikstjórans Richard Linklater (Dazed & Confused, Slacker, Before Sunset) en myndin er ansi mikið þrekvirki.

Hún var nefnilega tekin upp á 12 ára tímabili með sama leikaraliðinu. Við fylgjumst með aðalpersónunni Mason, leiknum af Ellar Coltrane, vaxa úr grasi frá sex til átján ára aldurs. Söguþráðurinn er því mjög einfaldur – þetta er þroskasaga drengs á Vesturlöndum.

Í sönnum Linklater stíl er myndin auðvitað stútfull af skemmtilegum samræðum en myndir hans eru þekktar fyrir langar og frjóar samræður milli sögupersóna.

Það er stórskrýtið að sjá persónurnar, ungar sem aldnar, verða eldri á skjánum og það veitir myndinni ljúfsáran og auðvitað raunsæislegan blæ.

Myndin vekur upp merkilegar spurningar um rás tímans og æskuna. Hún skilur eftir sig sætt bragð í munninum og angurværð í hjartanu. Þessi metnaðarfulla leið sem Linklater ákvað að taka gæti jafnframt gert Boyhood að epískustu „feel-good“ mynd allra tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×