Fótbolti

Enn og aftur heldur Juventus hreinu í deildinni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leikmenn Juventus fagna í dag.
Leikmenn Juventus fagna í dag. vísir/afp
Juventus skaust í toppsæti ítölsku úrvalsdeildarinnar með 1-0 sigri á Torino á útivelli í dag, en Juventus hefur verið duglegt við að halda hreinu í ítölsku úrvalsdeildinni.

Eina mark leiksins skoraði Alex Sandro á 33. mínútu, en það gerði hann eftir undirbúning Federico Bernardeschi. Lokatölur 1-0.

Þetta var níundi sigur Juventus í röð og í þessum níu leikjum hefur liðið einungis fengið á sig eitt mark sem er lygileg tölfræði, en það mark kom í 3-1 sigri á Hellas Verona.

Juventus er nú tveimur stigum á undan Napoli sem á þó leik til góða í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×