Enn mikil vinna eftir Boði Logason skrifar 19. júní 2013 12:04 Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu
Í dag eru níutíu og átta ár frá því að konur, sem voru orðnar 40 ára og eldri, fengu kosningarétt til Alþingis. Enn er mikil vinna eftir í jafnréttismálum, segir framkvæmdastýra Jafnréttisstofu. Þennan dag árið 1915 máttu konur sem náð höfðu 40 ára aldri kjósa í alþingiskosningum og rétt til að bjóða sig fram til Alþingis. En með breytingu á stjórnarskránni, sem gengu í gegn fimm árum síðar eða árið 1920, fengu allar konur kosningarétt til jafns við karla. Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, segir að dagurinn í dag sé mikill merkisdagur sem hafi verið haldið upp á síðustu tæplega hundrað ár. Þrátt fyrir að mikill árangur hafi náðst í jafnréttisbaráttunni hér á landi sé enn mikil vinna eftir. „Það sjáum við á launamisréttinu, í stjórnum fyrirtækja, yfirráðum yfir auðlindunum og á Alþingi þar sem varð fækkun á konum og í ríkisstjórn. Við sjáum það einnig í ofbeldismálunum, það er mikið verk eftir að vinna við breyta hugmyndum karla um konur og kvenna um karla. Og kvenna um sjálfan sig og karla um sjálfan sig svo að fólk fái notið sín í lífi og starfi, sé ekki bundið einhverjum hömlum um það hvernig karlar eiga að vera og hvernig konur eiga að vera," segir hún. Nóg verður um að vera í dag í tilefni dagsins. Á Akureyri verður farin kvennasöguganga um Oddeyrina og í Reykjavík verður lagður blómsveigur að leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu, og síðan verður gengið þaðan að Hallveigarstöðum þar sem verða kaffiveitingar í boði.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira