Enn mikil óvissa um öxlina hans Alexanders

Fréttablaðið Handbolti 16. febrúar 2012 08:00
Alexander Petersson hefur ekkert spilað með Füchse Berlin síðan á Evrópumótinu í Serbíu í janúar.
Alexander Petersson hefur ekkert spilað með Füchse Berlin síðan á Evrópumótinu í Serbíu í janúar. Mynd/E.Stefán
Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Berlín skrifar:
Það verður mikið um að vera á árinu 2012 hjá Alexander Peterssyni. Lið hans, Füchse Berlin, er í öðru sæti þýsku úrvalsdeildarinnar og á fullu í Meistaradeildinni. Í sumar gengur hann svo til liðs við Rhein-Neckar Löwen eins og legið hefur fyrir. Þá er Ólympíuár og Ísland á fína möguleika á að komast til Lundúna.
En það sem Alexander er fyrst og fremst að hugsa um þessa dagana er að ná sér góðum af axlarmeiðslum sem hafa plagað hann í nokkurn tíma og ógna nú bæði tímabilinu í Þýskalandi og þátttöku hans í verkefnum landsliðsins.


Enn mikil óvissa um öxlina hans Alexanders
Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Læknarnir ekki allir sammála
Fréttablaðið hitti á Alexander á kaffihúsi í Berlín í gær, fyrir leik sinna manna gegn Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni. Alexander tók ekki þátt í leiknum en hann hefur ekkert spilað síðan Ísland mætti Slóveníu á EM í Serbíu.

„Það veit enginn hvað þetta þarf langan tíma til að jafna sig," segir Alexander sem er með sýkingu í sinum auk þess sem bein í öxlinni er óeðlilega vaxið.

„Ég hef farið til nokkurra lækna sem segja sumir að best væri að laga beinið með aðgerð en aðrir vilja gefa öxlinni tíma til að jafna sig. Læknarnir í Füchse Berlin vilja sleppa við aðgerð en þótt ég myndi fara í hana væri ekki 100 prósent öruggt að það myndi leysa vandann."

Aðgerð myndi þýða að Alexander myndi ekki spila meira á tímabilinu. En það er meira í húfi – til að mynda umspilið fyrir Ólympíuleikana og jafnvel leikarnir sjálfir ef landsliðið kemst þangað. „Ég er orðinn betri en ég var í Serbíu og ég finn ekki fyrir öxlinni í daglegum verkum. En það er í raun ómögulegt að segja hvenær ég get kastað bolta á ný. Ég reyndi það í síðustu viku en það gekk ekki vel."


Enn mikil óvissa um öxlina hans Alexanders
Mynd/AFP
Reynir líka óhefðbundnar læknisaðferðir
Nýbúið er að senda röntgenmyndir af öxlinni bæði til lækna Flensburg, hans gamla félags, sem og Rhein-Neckar Löwen. Það er því verið að vinna í lausn vandans á mörgum vígstöðvum. Á meðan gengur Alexander til sjúkraþjálfara auk þess sem hann hefur einnig leitað til hómópata sem hefur reynst honum og öðrum íslenskum íþróttamönnum vel. Alexander er til í að reyna allt, með tilheyrandi remedíum og rafmagnsskautum.

„Fyrir nokkrum árum var ég í vandræðum með öxlina og hómópatinn komst að því að ég væri með skemmdan endajaxl. Þegar það var lagað þá lagaðist öxlin," segir hann og brosir. „Hann hefur reynst nokkrum íslenskum íþróttamönnum vel og hefur gott orð á sér."


Enn mikil óvissa um öxlina hans Alexanders
Mynd/AFP
Romero er brandarakall
Þegar talið berst að sjálfum handboltanum segir Alexander að gengi Füchse Berlin sé merkilega gott miðað við styrk leikmannahópsins. Það eru til dæmis engar stórstjörnur í liðinu. „En það er kannski okkar besti kostur. Dagur [Sigurðsson þjálfari] hefur náð að setja saman mjög góðan hóp. Við erum með mjög góða leikmenn í öllum stöðum en samt fer enginn í fýlu af því að hann fær ekki að spila þann daginn."

Hann segir liðsheildina góða og stemninguna líka. Gott dæmi sé hvernig spænski leikstjórnandinn Iker Romero, sem Dagur fékk til liðsins í fyrra, hefur komið inn í liðið.

„Mörgum þótti skrýtið að Dagur skuli hafa fengið hann því hann hefur verið mikið meiddur. Hann hefur samt komið inn í leiki og reynst okkur vel. Þess fyrir utan er hann afar skemmtilegur og þó svo að hann tali í raun litla þýsku eða ensku kemur hann öllum til að hlæja með lélegum fimmaurabröndurum með sínu hrognamáli. Hann leggur því sitt af mörkum þar líka."


Enn mikil óvissa um öxlina hans Alexanders
Mynd/Diener
Spennandi tímar hjá Löwen
Í sumar gengur Alexander svo til liðs við Rhein-Neckar Löwen og er spenntur fyrir því verkefni. Hann lýsti því í viðtali við Fréttablaðið fyrir áramót að honum hugnaðist illa að flytja fjölskylduna alla á milli landshorna í Þýskalandi á meðan það væri nokkur óvissa í kringum Löwen og framtíð félagsins.

Síðustu daga og vikur hafa þó fregnir borist úr herbúðum Löwen sem Alexander líst vel á. „Það eru nokkrir leikmenn að fara frá félaginu og aðrir mjög sterkir að koma inn. Ég er spenntur fyrir því að skipta yfir í sumar. Þó svo að félagið ætli sér stóra hluti og leikmenn ætla sér að ná langt er samt búið að stilla væntingum í hóf. Ég tel afar spennandi verkefni í gangi hjá félaginu."

Fleiri fréttir - Handbolti

Handbolti 24. maí. 2012 17:45

Ágúst og Rakel Dögg stofna saman Handknattleiksakademíu

Ágúst Jóhannsson landsliðsþjálfari kvenna og Rakel Dögg Bragadóttir fyrirliði landsliðs kv...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 10:16

Kvennalandsliðið mætir U-16 liði karla

A-landslið kvenna í handbolta mun í kvöld leika æfingaleik gegn íslenska piltalandsliðinu ...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 08:00

Snorri Steinn: Mætum óhræddir til leiks

Úrslitin í Meistaradeild Evrópu í handbolta ráðast um helgina. Þá fara fram undanúrslit og...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 07:30

Óli er maður stóru leikjanna

Ólafur Stefánsson mun mæta sínum gömlu félögum í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á la...  

Meira
Handbolti 23. maí. 2012 22:39

Heimir Óli búinn að semja við GUIF

Haukamaðurinn Heimir Óli Heimisson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við sænska...  

Meira
Handbolti 23. maí. 2012 19:40

Fínn leikur Hannesar dugði ekki til sigurs

Íslendingaliðið Hannover-Burgdorf varð að sætta sig við tap, 35-37, á heimavelli gegn Gumm...  

Meira
Handbolti 22. maí. 2012 23:30

Guðmundur grillar ofan í stuðningsmenn Löwen

Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Rhein-Neckar Löwen, og lærisveinar hans verða með grillspa...  

Meira
Handbolti 22. maí. 2012 20:30

Þrjú ný félög í N1-deild kvenna

Alls verða tólf lið í N1-deild kvenna næsta vetur þar sem þrjú ný félög hafa boðað þáttöku...  

Meira
Handbolti 22. maí. 2012 13:00

Anton til Danmerkur

Anton Rúnarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við danska úrvalsdeildarfélagið Sö...  

Meira
Handbolti 21. maí. 2012 20:00

Noregur, Króatía og Pólland berjast um EM 2016

Þrjú lönd eru enn í baráttunni um að halda EM í handbolta árið 2016. Það verður ákveðið í ...  

Meira
Handbolti 21. maí. 2012 13:30

Lövgren lofar Ólaf og Alexander

Úrslitin í Meistaradeild Evrópu ráðast í Köln í Þýskalandi um helgina og hefur Svíinn Stef...  

Meira
Handbolti 21. maí. 2012 07:00

Þórir: Togaði í að fá að spila í Meistaradeildinni og að vinna titla

Þórir Ólafsson og félagar í Vive Targi Kielce urðu um helgina pólskir meistarar í handbolt...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 21:36

Sunneva Einarsdóttir ver mark Stjörnunnar á næsta tímabili

Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur gert samning við markvörðinn Sunnevu Einarsdóttir en...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 20:30

Stefnir allt í fullkomið tímabil hjá Kiel | 32 sigrar í röð

Það virðist ekkert geta komið í veg fyrir það að þýska handknattleiksliðið Kiel skrái sig ...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 19:21

Jón Heiðar gengur til liðs við ÍR

Handknattleiksmaðurinn Jón Heiðar Gunnarsson hefur ákveðið að ganga til liðs við ÍR og mun...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 07:00

Þórey og Rut rétt misstu af bronsinu

Íslensku landsliðskonunar Rut Jónsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir urðu í fjórða sæti me...  

Meira
Handbolti 19. maí. 2012 19:42

Fimm mörk Kára ekki nóg á móti Hamburg - mikilvægt hjá Bergischer

Kári Kristjánsson skoraði 5 mörk fyrir HSG Wetzlar þegar liðið tapaði 26-28 á heimavelli f...  

Meira
Handbolti 19. maí. 2012 17:02

AG í úrslitaleikinn um titilinn - Ólafur mjög góður í sigri á Kolding

AG Kaupmannahöfn tryggði sér sæti í úrslitaeinvíginu um danska meistaratitilinn í handbolt...  

Meira
Handbolti 19. maí. 2012 14:28

Þórir pólskur meistari í handbolta

Þórir Ólafsson og félagar í Vive Targi Kielce urðu nú áðan pólskir meistarar í handbolta e...  

Meira
Handbolti 18. maí. 2012 19:30

Mikilvægur sigur hjá Füchse Berlin

Lærisveinar Dags Sigurðssonar hjá Füchse Berlin færðust í kvöld skrefi nær því að tryggja ...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 22:45

Þjálfari Rúnars Kárasonar rekinn

Rúnar Kárason fær senn nýjan þjálfara hjá þýska úrvalsdeildarfélaginu Bergischer HC þar se...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 21:15

Alfreð: Slekk á símanum í 3-4 vikur og sinni garðinum

Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel í Þýskalandi, segir að það sé mikilvægt að hvílast vel þega...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 16:32

Benedikt Reynir til liðs við Aftureldingu

Mosfellingar hafa fengið liðsstyrk fyrir næsta tímabil í N1-deild karla en Benedikt Reynir...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 12:45

Sögusagnir í Þýskalandi: Guðmundur að hætta með Löwen

Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands og þjálfari Rhein-Neckar Löwen, gæti veri...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 20:25

Hrun hjá Löwen í seinni hálfleik

Rhein-Neckar Löwen steinlá fyrir Flensburg á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld, 3...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 19:46

Kiel enn ósigrað í Þýskalandi

Kiel hélt áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta með sex mar...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 19:31

Rut og Þórey nálgast bronsið

Þórey Rut Stefánsdóttir og Rut Jónsdóttir skoruðu sitt markið hvor þegar að lið þeirra, Te...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 17:44

Vignir í fjórtán daga bann

Vignir Svavarsson hefur verið dæmdur í tveggja vikna bann vegna rauða spjaldsins sem hann ...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 11:57

Sunna kölluð inn í A-landsliðið

Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari kvenna í handbolta hefur þurft að gera eina breytin...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 08:00

Pistillinn: Hver er þróun kvennahandboltans?

Eftir að hafa fylgst með undanúrslitum Íslandsmótsins í handknattleik hugsar maður hvert k...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 06:00

Spenntur fyrir landsliðinu

Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, segir að mest spennandi þjálfarastarf á Íslandi sé land...  

Meira
Handbolti 15. maí. 2012 17:16

Gunnar Berg tekur við Stjörnunni

Gunnar Berg Viktorsson mun að óbreyttu taka við þjálfun karlaliðs Stjörnunnar í handbolta....  

Meira
Handbolti 15. maí. 2012 12:30

HK missir Elínu Önnu yfir í FH

Elín Anna Baldursdóttir, markahæsti leikmaður HK í úrslitkeppni N1 deildar kvenna og einn ...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 22:45

Kjelling tekur þátt í úrslitakeppninni í Katar

Norski landsliðsmaðurinn Kristian Kjelling er staddur þessa dagana í Katar þar sem hann le...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 18:43

Sigurbergur Sveinsson í Hauka

Sigurbergur Sveinsson hefur gert tveggja ára samning við deildarmeistara Hauka. Hann lék s...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 17:15

Árni Þór semur við Friesenheim

Örvhenta skyttan Árni Þór Sigtryggsson mun enn á ný söðla um í Þýskalandi í sumar en hann ...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 13:00

Örn Ingi hættur í FH og farinn í Aftureldingu

Örn Ingi Bjarkason, leikmaður í úrvalsliði N1 deildar karla í handbolta, hefur gert tveggj...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 19:00

Ágúst Þór búinn að velja landsliðshópinn

Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfari A-liðs kvenna í handknattleik, hefur valið 20 leik...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 17:43

Refirnir frá Berlín hökkuðu Sverre og félaga í sig

Lærisveinar Dags Sigurðssonar hjá Füchse Berlin styrktu stöðu sína í þriðja sæti þýsku úrv...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 16:59

Flottur útisigur hjá Hannover

Íslendingaliðið Hannover-Burgdorf vann góðan útisigur á Hildesheim í dag og reif sig um le...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 16:52

Sigurjón semur við uppeldisfélagið

ÍR-ingar halda áfram að safna liði fyrir komandi átök í N1-deild karla. Þeir hafa nú samið...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 12:40

Kiel í litlum vandræðum með Hamburg | Stefnir í fullkomið tímabil

Það stefnir svo sannarlega í fullkomið tímabil hjá lærisveinum Alfreðs Gíslasonar í Kiel e...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 00:05

Ólafur Bjarki og Stella valin best í handboltanum

Það var mikið um dýrðir í kvöld þegar lokahóf HSÍ fór fram. Þau Ólafur Bjarki Ragnarsson ú...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 18:36

Flott endurkoma hjá Kára og félögum

Kári Kristján Kristjánsson og félagar í Wetzlar nældu á stig á útivelli er þeir sóttu TuS ...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 17:33

AG gerði jafntefli í fyrri undanúrslitaleiknum

Dönsku meistararnir í AG gerðu jafntefli, 26-26, í fyrri leik sínum við Kolding í undanúrs...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 17:21

Gleði á Hlíðarenda - myndaveisla

Valskonur urðu Íslandsmeistarar í handknattleik í dag er þær unnu afar sannfærandi sigur á...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 16:53

Hrafnhildur: Verð bara betri með árunum

"Ég verð aldrei þreytt á því að lyfta þessum bikar, enda er ég með frekar góða upphandlegg...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 16:50

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Fram 24-21 | Valur Íslandsmeistari

Valur varð í dag Íslandsmeistari í handknattleik kvenna eftir frábæran sigur á Fram, 24-21...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 16:29

Rúnar og félagar voru flengdir

Rúnar Kárason skoraði eitt mark þegar lið hans, Bergischer, var flengt af Flensburg með sa...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 15:40

Einar hættur | Halldór Jóhann tekur við Fram-liðinu

Einar Jónsson, þjálfari kvennaliðs Fram, lýsti því yfir eftir leikinn gegn Val í dag að ha...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Handbolti / Enn mikil óvissa um öxlina hans Alexanders