Innlent

Enn lokað um Súðavíkur-og Raknadalshlíð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Á Vestfjörðum er ófært á fjallvegum, til Flateyrar og Suðureyrar.
Á Vestfjörðum er ófært á fjallvegum, til Flateyrar og Suðureyrar. vísir/bh
Enn er lokað um Súðavíkurhlíð og Raknadalshlíð við Patreksfjörð vegna snjóflóðahættu.

Í gær voru 23 hús rýmd á Patreksfirði og tvö á Tálknafirði. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að hvasst verði vestanlands í kvöld og sums staðar stormur og víða skafrenningur með éljum.

Veðrið fer versnandi á leiðinni austur fyrir Fjall og á Mosfellsheiðinni með kófi og takmörkuðu skyggni um tíma í kvöld. Eins við Akrafjall og í Melasveit. Í nótt dregur smámsaman úr snjókomu vindi á norðanverðum Vestfjörðum, en hríðarverður og hvass vindur með skafrenningi á Norður- og Norðausturlandi til morguns.

Hálka og skafrenningur er á Hellisheiði og í Þrengslum með hvassviðri og lélegu skyggni. Snjóþekja og hálka eru á Suðurlandi. Hálka er á Suðurstrandavegi og Eyrarbakkavegi að Selfossi.

Ófært er með stórhríð og hvassviðri á Holtavörðuheiði en  þæfingsfærð á Bröttubrekku. Ófært er á Fróðárheiði. Hálka og skafrenningur í Svínadal en annars er hálka eða hálkublettir á Vesturlandi og eitthvað um snjókomu eða éljagang.

Á Vestfjörðum er ófært á fjallvegum, til Flateyrar og Suðureyrar. Verið var að opna Kleifaheiði en þar er hálka. Súðavíkurhlíð og Raknadalshlíð við Patreksfjörð eru lokaðar. Þungfært er í Ísafjarðardjúpi og einnig er orðið þungfært og stórhríð á Hjallahálsi.

Á Norðurlandi er hálka eða snjóþekja og víða er skafrenning eða éljagangur.

Hálka og snjóþekja er á Austurlandi og éljagangur víða. Hálka, snjóþekja, hálkublettir og éljagangur er með suðausturströndinni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×