Innlent

Enn haldið sofandi eftir alvarlegt bílslys

Birgir Olgeirsson skrifar
Konan var flutt á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Konan var flutt á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Vísir/Vilhelm
Konunni, sem slasaðist illa í bílslysi við Hrútafjarðarháls síðastliðið sunnudagskvöld, er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans og ástand hennar sagt óbreytt.

Um var að ræða tveggja bíla árekstur þar sem báðir bílar enduðu utan vegar. Ein manneskja var í hvorum bíl en áverkar hins ökumannsins voru minniháttar.  


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×