Innlent

Enn gert ráð fyrir seinkunum á Keflavíkurflugvelli

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ekkert flug var um flugvöllinn frá tvö í nótt til sjö í morgun.
Ekkert flug var um flugvöllinn frá tvö í nótt til sjö í morgun. Vísir/GVA
Enn má gera ráð fyrir seinkunum á áætlunarflugi um Keflavíkurflugvöll eftir tímabundna lokun hans í nótt vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra.

Flugvellinum var lokað í nótt á milli klukkan tvö og sjö. Á tímabilinu áttu samkvæmt áætlun að koma hingað 16 flugvélar frá Norður-Ameríku og 8 að leggja af stað til Evrópu. Mikið var um að vera um leið og flugvöllurinn opnaði og gert er ráð fyrir að um 30 flugvélar taki á loft fram að hádegi.

Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia, segir að vel hafi tekist að glíma við þannn fjölda farþega sem safnaðist saman þegar 16 flugvélar frá Ameríku lentu á flugvellinum með skömmu millibili. Gera megi þó ráð fyrir seinkunum fram eftir degi á meðan flugvél vinna upp tafirnar frá því í nótt.

„Þetta voru um þrjú þúsund farþegar en það gekk vel, bæði í farþegaþjónustu hjá okkur og í landamæraeftirlitinu,“ segir Guðni. „Það er kominn reynsla á þetta,“ en þetta er í þriðja sinn sem Keflavíkurflugvöllur lokar tímabundið vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra.

Yfirvinnubann flugumferðarstjóra tók gildi í byrjun apríl og er liður í kjaradeilu flugumferðarstjóra við Isavia og Samtök atvinnulífsins. Síðasti fundur í kjaradeilunni var haldinn 20. maí síðastliðinn. Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað til næsta fundar í viðræðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×