Sport

Enn gerir Ásgeir það gott í Þýskalandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ásgeir að gera það gott.
Ásgeir að gera það gott.
Ásgeir Sigurgeirsson skotíþróttamaður var að ljúka keppni hjá liði sínu TSV Ötlingen í Þýskalandi. Þetta er önnur helgin á þessu keppnistímabili sem hann heldur utan til keppni með liði sínu í Bundesligunni.

Ásgeiri gekk fanta vel um helgina. Í gær var skorið frábært 388 stig en mótherinn hans Aadreas Riedener skoraði 377 stig .

Keppti  TSV Ötlingen við  SV Altheim Waldhausen og vann Ötlingen þá viðureign 3 - 2. Fyrr í dag lauk viðureign TSV Ötlingen við SSG Dynamit Furth.

Ásgeir vann sína viðureign við  Alessio Torracchi með mjög góðu skori 386 stig á móti 377 stigum Alessio.  Ötlingen tapaði viðureigninni 4-1




Fleiri fréttir

Sjá meira


×