Fótbolti

Enn gengur ekkert hjá Sölva og félögum í Rússlandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sölvi Geir Ottesen í leik með Ural.
Sölvi Geir Ottesen í leik með Ural. Vísir/Getty
Ural, lið íslenska landsliðsmannsins Sölva Geirs Ottesen, tapaði í dag 0-1 á heimavelli fyrir Terek Grozny í rússnesku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Ural hefur þar með aðeins náð í eitt stig í fyrstu sex umferðum tímabilsins og það stig kom í 1-1 jafntefli á móti Ragnari Sigurðssyni og félögum í Krasnodar.

Sölvi Geir Ottesen spilaði allan leikinn í miðri vörninni en sigurmark Terek Grozny kom á 68. mínútu leiksins.

Þetta var fjórða tap Ural-liðsins í röð og liðið hefur ekki náð að skora í síðustu þremur leikjum sínum í deildinni.

Ural var ekki í fallsæti fyrir þessa umferð þrátt fyrir fá stig en það gæti breyst þegar umferðinni lýkur á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×