Tónlist

Enn fleiri listamenn bætast við á Sónar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hátíðin er haldin í Hörpunni.
Hátíðin er haldin í Hörpunni. vísir
Tíu hljómsveitir og listamenn hafa nú bæst við dagskrá tónlistarhátíðarinnar Sónar Reykjavík - sem fram fer á fimm sviðum í Hörpu dagana 18.-20. febrúar á næst ári. Meðal þeirra er bandaríska dans-rokksveitin (CHK CHK CHK), einn virtasti plötusnúður heims Annie Mac og hin rísandi stjarna Hildur sem spila mun á sérstöku Red Bull Music Academy sviði. 

Alls hafa rúmlega 60 hljómsveitir, listamenn og plötusnúðar verið staðfestir fyrir dagskrá Sónar Reykjavík 2016. Hátíðin fer fram á fimm sviðum í Hörpu, m.a. í bílakjallara tónlistarhússins sem breytt verður í næturklúbb.

Mikill áhugi er á hátíðinni erlendis, enda vel verið látið af viðburðinum og sérkennum hans í erlendum fjölmiðlum frá því hún var fyrst haldin árið 2013. Aldrei fyrr hafa jafn margir miðar selst á hátíðina í Bretlandi, Þýskalandi og Kanada. Uppselt hefur verið á Sónar Reykjavík síðustu tvö ár.

Meðal þeirra listamanna og hljómsveita sem þegar hefur verið staðfest að komi fram á Sónar Reykjavík 2016 eru; Boys Noise (DE), Hudson Mohawke (UK), Angel Haze (US), Squarepusher (UK), Holly Herndon (US), Ellen Allien (DE), Floating Points (UK), Oneothrix Point Never (US), Ben UFO (UK), Lone (UK), Black Madonna (US), Rødhåd (DE), Recondite (DE), AV AV AV (DK), Eloq (DK), Páll ÓskarKiasmosÚlfur ÚlfurApparat Organ QuartetBjarkiPresident Bongo & Emotional CarpentersIntr0beatzSturla Atlas og Vaginaboys.

Lokadagskrá hátíðarinnar verður kynnt í byrjun janúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×