Viðskipti erlent

Enn fleiri flugfélög banna Samsung Galaxy Note 7

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Galaxy Note 7 var innkallaður af Samsung fyrr í haust.
Galaxy Note 7 var innkallaður af Samsung fyrr í haust. MYND/GETTY
Vandræði tengd nýjasta síma Samsung, Galaxy Note 7, virðast engan endi ætla að taka. Í gær bönnuðu bandarísk og kanadísk símann í flugvélum og nú hafa flugfélög í Ástralíu, Asíu og Evrópu gert slíkt hið sama.

Air Berlin, Dragonair og Virgin Australia eru meðal þeirra sem hafa tekið upp blátt bann við símanum. Qantas, og dótturfyrirtæki þess Jetstar, gáfu frá sér yfirlýsingu í dag þar sem sagði að „bannið nær yfir öll símtæki sem eru meðferðis í flugvélum, í handfarangri sem og í innrituðum farangri.“

Air Berlin hefur bannað símtækin í öllu flugi. Keppinautur þeirra Lufthansa hefur bannað símann í öllu flugi til og frá Bandaríkjunum, en búist er við að þau banni símann í öllu flugi á næstu dögum.

Singapore Airlines sagði í yfirlýsingu á Facebook síðu sinni að „Galaxy Note 7 snjallsíminn verður bannaður í öllum okkar flugvélum, í handfarangri og innrituðum farangri, frá 16. október.“

Frægt er nú orðið að símar af þessari gerð eigi það til að ofhitna og springa. Vandamálið kom upp í ágúst og þá hvöttu flugmálayfirvöld eigendur símana til þess að ferðast ekki með þá í háloftunum án þess þó að banna það.

Ekki er enn vitað hvað veldur því að símarnir ofhitni, en talið er að gallinn muni kosta Samsung um 600 milljarða þegar uppi er staðið og alfarið hætt sölu og framleiðslu á símanum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×