Erlent

Enn eitt áfallið fyrir Clinton á lokasprettinum

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Hillary Clinton hefur dalað verulega í skoðanakönnunum vegna atburða síðustu daga.
Hillary Clinton hefur dalað verulega í skoðanakönnunum vegna atburða síðustu daga. Nordicphotos/Getty
Tölvupóstsklúður Hillary Clinton heldur áfram að valda henni tjóni, nú þegar aðeins fáeinir dagar eru til forsetakosninga í Bandaríkjunum.

Í gær fullyrti fréttastöðin Fox News að alríkislögreglan FBI telji 99 prósent líkur á því að leyniþjónustur allt að fimm landa hafi brotist inn í einkapóstþjón hennar þegar hún notaði hann á meðan hún var utanríkisráðherra í stjórn Baracks Obama. Þar með séu allar líkur á því að hún verði ákærð.

Fréttastöðin hefur þetta eftir tveimur ónafngreindum heimildarmönnum, sem hún segir hafa góða innsýn í rannsóknir FBI.

Barack Obama Bandaríkjaforseti fór á miðvikudag hörðum orðum um James B. Comey, yfirmann FBI, fyrir að hafa blandað sér í kosningabaráttuna á lokasprettinum.

„Við störfum ekki á grundvelli ófullkominna upplýsinga,“ sagði Obama, og þótt hann hafi ekki nefnt Comey á nafn, þá þótti augljóst hvern hann átti við.

Comey fullyrti í síðustu viku að hugsanlega þurfi að hefja nýja rannsókn á tölvupósti Clintons, þar sem hafin væri rannsókn á tölvupósti fyrrverandi þingmannsins Anthony D. Weiner, sem er jafnframt fyrrverandi eiginmaður aðstoðarkonu Clinton, Huma Abedin.

Verulega hefur dregið saman með Clinton og Donald Trump í skoðanakönnunum síðustu daga.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir

Nærast bæði á óvinsældum hins

Á þriðjudaginn í næstu viku lýkur hinni ógnarlöngu kosningabaráttu í Bandaríkjunum þegar loks verður gengið til kosninga. Á lokasprettinum hefur dregið mjög saman með þeim Hillary Clinton og Donald Trump.

Tölvupóstar Clinton enn til trafala

FBI hefur sagt nokkra þeirra tölvupósta sem hún skilaði inn innihalda leyniskjöl. Slík meðhöndlun leyniskjala er ólögleg í Bandaríkjunum.

Tvísýnar horfur í Bandaríkjunum

Á þessum tíma í næstu viku ætti að liggja ljóst fyrir hver verður orðinara n nýr forseti Bandaríkjanna. Baráttan hefur harðnað til muna á síðustu metrunum og stefnir í tvísýna kosningu, því Trump og Hillary mælast jöfn í nýjustu könnunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×