Innlent

Enn einn stormurinn „í beinni“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Veðurstofan varar við stormi víða á landinu í dag.
Veðurstofan varar við stormi víða á landinu í dag. Vísir/NullSchool.net
Veðurstofan spáir enn einum storminum í dag og eins og áður má fylgjast með honum „í beinni“ hér á Vísi.

Veðurhorfur á landinu:

Suðvestan 13-20 metrar á sekúndu og él, en bjartviðri norðaustan til á landinu. Dregur heldur úr vindi og éljum í kvöld. Hiti kringum frostmark. Gengur í suðaustan 15-23 með slyddu eða rigningu í fyrramálið, en snjókomu eða slyddu fyrir norðan og hlýnar heldur. Snýst í sunnan 10-18 eftir hádegi á morgun með skúrum eða éljum, einkum um landið sunnan-og vestanvert.

Sjá nánar á veðurvef Vísis.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×