Körfubolti

Enn einn stórleikur Westbrooks dugði ekki til sigurs | Myndbönd

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Russell Westbrook fór enn eina ferðina hamförum fyrir Oklahoma City Thunder í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en það dugði ekki til sigurs frekar en undanfarið.

Westbrook skoraði 49 stig, tók átta fráköst og gaf fimm stoðsendingar er OKC tapaði fyrir Houston Rockets, 118-116, á útivelli. Tvö vítaskot frá Nene þegar innan við sekúnda var eftir af leiknum tryggði heimamönnum sigurinn.

Westbrook setti persónulegt met með því að skora átta þriggja stiga körfur en það dugði ekki til sigurs frekar en stórleikir hans undanfarið. OKC er nú búið að tapa þremur leikjum í röð og er í sjöunda sæti vestursins.

San Antonio Spurs gefur ekkert eftir í baráttunni við Golden State Warriors á toppi vesturdeildarinnar en liðið vann annan leikinn í röð og þann 29. á leiktíðinni þegar það hafði betur gegn Denver á útivelli í nótt, 127-99.

LaMarcus Aldridge er búinn að vera að spila svakalega vel að undanförnu en hann skoraði 28 stig og tók fjögur fráköst í leiknum en Tony Paker skoraði 21 stig og tók níu fráköst.

Spurs er í öðru sæti vestursins, tveimur sigrum á eftir toppliði Golden State en liðið er búið að vinna 17 af 20 útileikjum sínum á leiktíðinni.

Úrslit næturinnar:

Indiana Pacers - Brooklyn Nets 121-109

Toronto Raptors - Utah Jazz 101-93

Detroit Pistons - Charlotte Hornets 115-114

New Orleans Pelicans - Atlanta Hawks 94-99

Houston Rockets - OKC Thunder 118-116

Dallas Mavericks - Phoenix Suns 95-102

Denver Nuggets - San Antonio Spurs 99-127

Portland Trail Blazers - LA Lakers 118-109

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×