Körfubolti

Enn einn stórleikur Westbrook í sigri á meisturunum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Russell Westbrook í leiknum gegn Cleveland í nótt.
Russell Westbrook í leiknum gegn Cleveland í nótt. Vísir/AP
Oklahoma City vann meistarana í Cleveland, 118-109, í NBA-deildinni í nótt. Russell Westbrook átti enn einn stórleikinn og náði sinni 26. þreföldu tvennu.

Westbrook var með 29 stig, tólf fráköst og ellefu stoðsendingar en þetta er 63. þrefalda tvennan hans á ferlinum.



Þetta veit á gott fyrir viðureign Oklahoma City gegn Kevin Durant, fyrrum liðsmanni liðsins, og félögum í Golden State Warriors á laugardag.

Kyrie Irving skoraði 28 stig fyrir Cleveland, LeBron James var með átján og Kevin Love fimmtán fyrir Cleveland sem hafði unnið fjóra leiki í röð fyrir viðureignina í nótt.

Cleveland er sem fyrr í efsta sæti austurdeildarinnar en Oklahoma City er nú í sjöunda sæti vesturdeildarinnar.



Boston náði að saxa á forystu Cleveland á toppnum í austrinu með sigri á Portland, 120-111. Isaiah Thomas skoraði 34 stig fyrri Boston, þar af fimmtán í fjórða leikhluta.

Boston hefur unnið 34 leiki á tímabilinu og er nú tveimur sigrum á eftir Cleveland.



Houston vann Charlotte, 107-95, þar sem James Harden skoraði 30 stig, tók ellefu fráköst og gaf átta stoðsendingar. Þetta var þriðji sigur Houston í röð sem er í þriðja sæti vesturdeildarinnar með 39 sigra. Golden State er efst með 44 sigra og San Antonio er með 40.

Staðan í deildinni.



Úrslit næturinnar:

Charlotte - Houston 95-107

Orlando - Philadelphia 111-112

Oklahoma City - Cleveland 118-109

Dallas - Utah 112-105

Portland - Boston 111-120

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×