Handbolti

Enn einn sigurinn hjá Veszprém

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aron fékk hvíld í dag.
Aron fékk hvíld í dag. vísir/epa
Ungverska meistaraliðið Veszprém, sem Aron Pálmarsson leikur með, er í sérflokki í heimalandinu.

Í dag vann liðið sinn tólfta leik í röð í deildinni og er á toppnum með fullt hús stiga.

Að þessu sinni lagði Veszprém lið Mezökövesdi, 30-26. Staðan í hálfleik var 15-12.

Aron lék ekki með liði Veszprém í dag. Króatinn Marko Kopljar var markahæstur í liði þeirra með fimm mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×